24.8.2011 | 21:44
Löngu tímabært
Það var kominn tími til að hátt settir fulltrúar íslenska ríkisins tali formlega við Kínverja um gagnkvæm viðskipti milli landanna. Hér er seint betra en allt of seint og fagnaðarefni að loksins skuli hafa orðið af þessu, þótt hér sé "einungis" um einkaaðila að ræða.
Það var hins vegar bagalegt að forsætisráðherrann okkar gat ekki fundið tíma til að hitta æðsta mann Kína í sumar með formlegum hætti til eflingar á viðskiptum og samskiptum milli þjóðanna. Þar tapaðist dýrmætur tími til uppbyggingar viðskipta, að því er séð verður.
En, hér fær utanríkisráðherra vor plús fyrir sína fyrirhöfn. Gott er að hann skuli hafa fundið tíma til þess nú frá annríki sínu á öðrum vettvangi.
![]() |
Funduðu um fjárfestingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.8.2011 | 12:58
Hlýtur að vera skáldskapur
Meðfylgjandi myndir sem sagðar eru teknar í nánasta umhverfi Hafnarfjarðar gætu (ó)hreinlega verið uppspuni Hafnfirðingum til hnjóðs; Svo ömurlegan vitnisburð sýna þær um umgengni íbúa staðarins (og e.t.v. annarra) við sitt nánasta umhverfi í náttúrunni. Er þetta ekki aprílgabb?
Ef þetta er raunverulegur sannleikur og sóðaskapur en ekki skáldskapur vantar einhvern jákvæðan þátt í umgengnisvenjur þeirra sem þarna sóða til og menga og ekki síður eftirlitsþátt í fegrunardeild bæjarins.
Hafnarfjörður er fagur staður frá náttúrunnar hendi, en allir mengandi staðir og umgengniskæruleysi breiða yfir og fela þá fegurð og svína út sómakæra íbúa, sem eru ómeðvitaðir um slíkt athæfi eða andæfa því, með ómaklegum hætti.
Nú þegar hljóta stjórnendur bæjarins að vera búnir að senda mannskap til að þrífa til og uppfræða íbúana um til hvers sorphirðudeilir bæjarins eru.
![]() |
Yfirgengilegur sóðaskapur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.8.2011 | 00:53
Hvað með jöklana?
Mér finnst athyglisvert á þessari gervihnattamynd af Íslandi í dag hvernig jöklarnir líta út. Samanborið við dæmigert skóla-landakort af Íslandi sem hékk uppi á vegg alla daga í mínum skóla á sjöunda áratug 20. aldar með æpandi hvítar og stórar skellur jöklanna finnst mér áberandi hversu þeir hafa skroppið saman; Eins og mig minnir að þeir hafi litið út á gamla kortinu.
Sérstaklega finnst mér Langjökull og Hofsjökull orðnir "veimiltítulegir", að ekki sé minnst á Snæfellsjökull sem nú er orðinn nánast að punkti. Norðurhliðin á Vatnajökli virðist einnig ekki eins bungulaga norður á við eins og var. Þá finnst mér lögunin á Langjökli einnig orðin umtalsvert önnur en áður var.
Ef til vill er myndin af landinu dálítið tognuð á þverveginn og hlutföll þess vegna ekki alveg rétt á að líta hér og einnig gæti hafa tognað á minninu hjá mér, en ég spyr: Hvat es með jöklum?
![]() |
Ísland baðað sól |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.8.2011 | 17:34
Kjarnakona talar - Og með Lennon og Ingólfi á Rás eitt
Kjarnakonan og Íslandsvinurinn Yoko Ono bendir hér hinum kjarnorkuvædda heimi á dæmi þar sem Ísland og ráðsmenn þess og ábúendur geti verið gott fordæmi á jákvæðan hátt, en væntanlega ef skynsamlega er að verki staðið. Hafi hún þakkir fyrir það.
Það er mikið gleðiefni að nú skuli vera hafin útsending á þáttum Ingólfs Margeirssonar heitins og Bítlaaðdáanda á Rás 1 í Ríkisútvarpinu um tónlist og texta og boðskap bónda hennar og fyrrverandi Bítils, John Lennon. Þar fjallar Ingólfur um feril Lennons eftir að Bítlarnir hættu saman sem hljómsveit um 1970 og hann fór á vit örlaga sinna vestur um haf með konu sinni og sálufélaga, Yoko. Þar fléttast inn í þáttur hennar og sameiginleg og ódauðleg og hughraust barátta þeirra beggja fyrir friði í heiminum. Þá, ekki síður en nú, var á brattann að sækja í þeim efnum.
Ímyndið ykkur hina djúpu visku um forsendur friðar sem kemur fram í lagi hans Imagine. "Hugsa sér frið"!, eins og Þórarinn Eldjárn túlkaði inntak textans í tengslum við friðarsúluna í Viðey.
![]() |
Hvetur Japani til að horfa til Íslands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 8.8.2011 kl. 00:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.8.2011 | 16:54
Til eflingar á lífinu í landinu
Áhugafólk um íslenskan landbúnað með þrjá bændur af báðum kynjum í broddi fylkingar hefur hafið útgáfu á alþýðlegu fræðsluriti, og að því er virðist almennu riti um landbúnaðarmál, er kallast Freyja.
Fyrsta tölublaðið kom út í dag og er dreift á netinu, en einnig er hægt að fá það í prentaðri útgáfu. Frumútgáfan sýnir ágætisbyrjun og góð fyrirheit um framhaldið! Til hamingju með framtakið.
Margir gætu tekið það sér til fyrirmyndar til eflingar á lífinu í landinu, hver á sínu sviði.
![]() |
Nýtt búnaðarblað hefur göngu sína |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.7.2011 | 17:55
Augljósar ástæður
Það sem haft er hér eftir Lilju Mósesdóttur um orsök viðvarandi kreppuástands hérlendis í kjölfar bankahrunsins 2008 er augljóst: Háir vextir og tilsvarandi kolröng efnahagsstefna. Um rök fyrir þeirri skoðun hefur einnig verið fjallað áður á þessu bloggi.
"Rökstuðningur" Seðlabanka Íslands fyrir hávaxtastefnunni undanfarin ár er marklaus og vitnar fremur um þekkingarleysi og dómgreindarleysi fræðinganna þar á bæ, í ljósi ríkjandi gjaldeyrishafta hér, eða makalausan undirlægjuhátt þeirra gagnvart Alþjóðagjaldeyrissjóðnum eða ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingar, augljósra umboðsmanna sjóðsins hérlendis í reynd.
Þrátt fyrir ítrekaða gagnrýni ýmissa aðila á þessa stefnu, ekki síst Lilju, fást ekki haldbær svör við ríkjandi landeyðingarstefnu stjórnvalda. Það er eins og að berja höfði við svartan marmarasteininn í Seðlabankahúsinu.
"Gamli Steingrímur" hefði sjálfur fyrir löngu verið búinn að tala sig upp úr þingsal Alþingis og út fyrir dálka fjölmiðla í gagnrýni sinni á stefnuna ef hann hefði verið í stjórnarandstöðu, enda er ekki ólíklegt að honum hefði fundist málflutningur sinn skiljanlegri þá en nú.
Vert er að benda á í þessu sambandi að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins fjallar um ýmis atriði sem mátt hefðu fara betur í efnahagsstjórninni í grein sinni í Morgunblaðinu í dag.
Fyrir löngu síðan hefur sá hræðilegi grunur læðst að að núverandi stjórnvöld hafi ekki tilskilið vit á grundvallaratriðum efnahagsstjórnar, fremur en hrunstjórnin á sinn hátt, enda hafa margir þingmenn ekki einu sinni komið að rekstri smáfyrirtækis hvað þá meira, né byggja þeir á tilhlýðilegri menntun til landsstjórnar. Það er ekki von á góðu úr slíkum efnivið.
Ráðherrar tala í afdönkuðum pólitískum frösum og geta í dúr við það ekki hafist handa á skapandi hátt við skapandi framkvæmdir til að vinna þjóðina út úr vanda athafna- og atvinnuleysis. Þar að auki fer aðalkrafturinn hjá núverandi ríkisstjórn að því er virðist í kolrangar áherslur um brennandi víti í Evrópu og að bjarga fjármálafyrirtækjum eins og Lilja bendir á, og uppákomur og þjark í sífelldri pattstöðu mála.
Skuldaþjökuð heimili og fyrirtæki horfa vondaufum augum á þessa fjarstæðu og koma ekki svo mikið sem einu auga á skjaldborg sína í villumistrinu. Kosningaloforð stjórnarflokkanna eru nú gríni líkust.
Nú verður ríkisstjórn alþýðunnar að fara að aðhafast eitthvað af viti fyrir kjósendur sína og þjóðina alla eða að boða til kosninga að öðrum kosti. Eða, er valdaseta meginmarkmið ríkisstjórnarinnar, eins og margir væna hana um?
![]() |
Fjárfestar fældir frá með háum vöxtum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 30.7.2011 kl. 00:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.7.2011 | 16:51
Hvers vegna keypti ríkið?
Það eru allt góðar og afar gildar spurningar sem Guðlaugur Þór Þórðarson alþm. viðrar varðandi ráðstafanir ríkisstjórnarinnar og umboðsmanns hennar Seðlabankans um málefni varðandi inngrip ríkisins í að bjarga Sjóvá frá formlegu gjaldþroti.
Hitt er annað hvers vegna ríkið bjargaði Sjóvá yfirhöfuð. Fjármálaráðherrann virtist á sínum tíma, m.a. í fréttaviðtali við rúv, verja þann gjörning með því að þar með væri verið að bjarga þáverandi viðskiptavinum Sjóvá frá meintum vandræðum ef fyrirtækið yrði látið róa sinn feigðarsjó til enda. Einnig að koma með því í veg fyrir hættu á samþjöppun á tryggingamarkaðnum ef svo færi. Loks væri þetta ekki styrkur ríkisins heldur "fjárfesting" í starfandi atvinnufyrirtæki sem myndi skila sér síðar er það yrði selt. Kjósendur þögðu við þessi rök að svo komnu máli í trausti á dómgreind ráðherrans.
En, hversu gild og góð voru þessi rök ráðherrans?
Nú er komið á daginn að ekki reyndist þetta góð fjárfesting út af fyrir sig fyrir ríkið, eins og Guðlaugur ræðir um samkvæmt fréttum þar um: Ríkið tapar um 4 milljörðum króna á tiltækinu og kallar Seðlabankastjóri það góð kaup í fréttum gærdagsins á rúv, í sjálfdæmi sínu um árangur Seðlabankans við söluna á Sjóvá.
Virk samkeppnisyfirvöld hefðu væntanlega komið í veg fyrir að eftirlifandi keppinautar hefðu sópað umyrðalaust til sín gömlum viðskiptavinum Sjóváar úr þrotabúi þess í meira mæli en hægt væri við að una, þannig að ekki er hægt að segja að það hræðsluefni fjármálaráðherra hafi átt við rök að styðjast. Þvert á móti bjagaði ríkið markaðsaðstæður á tryggingamarkaði með inngripi sínu með því að bjarga fyrirtæki fjárglæframanna á kostnað þeirra tryggingafyrirtækja sem virtu leikreglur og hefðu fremur átt að fá umbun fyrir árvekni sína og heilbrigða viðskiptahætti með því að uppskera svikna viðskiptavini hins gjaldþrota fyrirtækis.
Þá hefur fjármálaráðherrann, svo ég viti til, ekki gert tilhlýðilega grein fyrir meintum "ávinningi" ríkisins eða þjóðarinnar af því að bjarga Sjóvá frá stöðvun að því er varðar önnur atriði en ætlaðan "ágóða" (sem nú reynist vera neikvæður um 33%) af fjárfestingunni sjálfri.
Hrópandi spurning liggur því í loftinu: Hvers vegna bjargaði ríkið Sjóvá?
![]() |
Hæsta tilboðinu ekki tekið í Sjóvá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.7.2011 | 20:49
Með samhygð eflumst
Hjartanlegar samúðarkveðjur til aðstandenda fórnarlamba hryðjuverkanna í Noregi, frændþjóðar okkar Norðmanna og annarra sem eiga um sárt að binda.
"... góðmennskan og samhugurinn efla dáð." (úr Hugarstríð á Lífsins gangur (KSJ03 CD), 2008).
Mínar hugheilu kveðjur með Hughreystingu í Talandi tónum (sbr. instrumental lag mitt hér á spilaranum mínum).
![]() |
Fátt hefur komið verr við mig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.7.2011 | 02:55
Um flís af kjöti og stafla af bjálkum skulda og vaxta
Það sætir furðu með hve mikilli hörku forseti ASÍ ræðst gegn viðleitni sauðfjárbænda við að bæta tekjur sínar, eins og Ásmundur Daði bendir á, en í fréttum hefur komið fram að bændur hyggist leitast við að fá meira frá milliliðum án þess að það fari samsvarandi út í verðlagið til neytenda.
Þessu virðist forseti ASÍ horfa framhjá og hótar þessum bændum því að sparka öllum þessum tekjugrundvelli þeirra undan þeim og þar með farga gjaldeyrissparandi framleiðslu og hluta gjaldeyrisöflunar þjóðarinnar, þ.e. með því að hvetja félagsmenn ASÍ til að sniðganga innlent lambakjöt.
Þar sem það er efalaust ásetningur ASÍ að bæta kjör félagsmanna sinna væri e.t.v. nær að ráðast hatrammlega gegn t.d. vaxtaoki heimila. Þar er um margfalt hærri kostnað og útgjaldalið að ræða fyrir heimilin og launþega heldur en neyslukostnaður þeirra vegna lambakjöts er.
![]() |
Vill sniðganga Gylfa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
15.7.2011 | 12:23
Darren Clarke fékk líka örn
Norður-Írinn Darren Clarke fékk líka örn í morgun 15. júlí, á 7. holu (sem er par 5). Þeir kunna þetta fleiri í reynsluboltaliðinu.
Darren er með 4 undir pari eftir 2. dag mótsins. Gott hjá honum og gangi honum vel. Það væri gaman ef honum auðnaðist að vinna mótið. Hann á greinilega möguleika á því eftir góðan fyrri helming mótsins, ekki síst í ljósi þess að Daninn Thomas Björn feilsteig sig dálítið í dag.
Einnig væri gaman að Furyk næði sér á strik, að ég tali nú ekki um hinn skemmtilega og fyrrum undir-tuttugu-ára efnilega golfara Sergio Garcia.
En, náttúrulega er þetta allt galopið ennþá og margir frábærir kallaðir.
![]() |
Watson fór holu í höggi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)