Ljósglætan í dag. Íslensk erfðagreining dæmi um góðan "kokteil" fyrir Ísland

Til hamingju með þessa hressilegu hækkun, Íslensk erfðagreining (ÍE). Þetta er skemmtileg upplyfting. Það eru góðar fréttir að einhverjir þarna úti skuli vera nógu framsýnir og hyggnir til að eygja þann mikla ávinning sem óhjákvæmilega hlýtur að koma í ljós í fyllingu tímans á sviði brautryðjendastarfsins á sviði erfðarannsókna sem ÍE stundar. Þar þarf líka að koma til þolinmæði af hálfu fjárfesta til að festa fé í þessu tímafreka þróunarstarfi.

Þessu máli svipar til þrotlausra tilrauna Thomas A. Edison er hann var að þróa ljósaperuna við nokkuð erfiðar aðstæður. Ef ég man rétt var hann hann búinn að gera um 3000 tilraunir áður en honum tókst að láta lifa á rafperu í nokkurn tíma. Það sem knúði Edison áfram var óbilandi fullvissan um að þetta væri hægt og að þetta væri framtíðin hvað lýsingu snerti, þ.e. að nýta rafmagn. Eins er með erfðarannsóknirnar og þá sem þær stunda og stjórna og leiða.
Hugsa sér það að hægt verði að "lagfæra" gölluð gen í frumum, sem valdið hafa t.d. krabbameinsmyndun í líkamsvefjum og líffærum, þannig að þau framleiði á ný heilbrigðar og eðlilegar frumur, eða með öðrum orðum að hægt verði að setja inn "rétt forrit" fyrir frumuframleiðslu líkamans á viðkomandi stað.
En, fyrst þarf óhemjumiklar rannsóknir og greiningar, bæði á lífsýnunum sjálfum og á sviði ótrúlega flókinna útreikninga við svokallaðar raðgreiningar á sýnunum og tölfræði þar að lútandi (sbr. kynningarbók um efnið: Introduction to bioinformatics, e. Attwood og Parry-Smith, Prentice Hall, 1999). Til þess þarf m.a. öflugan tækjabúnað og hugbúnaðarþróun. Þetta er heillandi starf sem snýst um lífið sjálft. Hvað er mikilvægara?

Hér er um að ræða verðmæta auðlind sem Íslendingar eiga í fórum sínum og sem hægt er að nýta þeim og öðrum til góðs, þ.e. lífsýnasafnið sem ÍE kom sér upp fyrir nokkrum árum í kjölfar sviptinga og venjulegra úrtöluradda í þjóðfélaginu sem ekki skildu eða vildu ekki skilja um hvað málið snýst hvað nýtingu gagnanna varðar. Þessi gögn verða samt bara gögn og ekkert meir og engum til gagns ef þau eru ekki rannsökuð og leitast við að greina þær undursamlegu upplýsingar sem í þeim felast. Til þess þarf tíma, þekkingu, þrotlausa þekkingarleit og ályktunarhæfni (og auga fyrir mynstri!) og margt fleira sem hæft starfsfólk býr yfir, auk hins afar kostnaðarsama tækjabúnaðar og aðstöðu og góðs skipulags. Ekki síst þarf úthald og þrek og þol allra hlutaðeigandi aðila, bæði hjá starfsfólki og fjárfestum. Þessu hafa skammsýnir fjárfestar og fjármálaráðgjafar ekki gert sér grein fyrir í upphafi ef þeir hafa haldið að þeir gætu innbyrt skjótfenginn hagnað á fyrsta ári. Þeir hafa ekki leitt hugann nægilega vel að eðli þessarar starfsemi og gert sér óraunhæfar væntingar um tímasetningu uppskerunnar.

Það er þrekvirki að hafa komið þessu stóra fyrirtæki á laggirnar á Íslandi á sínum tíma og draga að allan þann fjölda hæfs starfsfólks, svo sem sæg vísndamanna á heimsmælikvarða, eins og raunin varð á þegar í upphafi, enda var sárt að horfa upp á er fyrirtækið neyddist til að sjá á eftir mörgum starfsmönnum sínum sökum niðurskurðar í starfseminni í miðjum klíðum fyrir nokkrum árum. Enn meira þrekvirki er að viðhalda þeirri þrautseigju sem þarf til að halda starfinu áfram og leiða fyrirtækið á þróunarbraut sinni þótt á móti blási, köldu á tíðum.

ÍE er dæmi um verðmætan og nýstárlegan fyrirtækjarekstur í landinu sem dregið hefur að erlent fjármagn fjárfesta til að vinna verðmæti úr innlendri auðlind, sem lá dulin og ónýtt fyrir, án þess að henni yrði fargað í leiðinni né umhverfisspjöll unnin eða umhverfið mengað. Þetta er uppskrift að góðum "kokteil" fyrir fjárfreka starfsemi á Íslandi. Við þurfum fleiri svona kokteila hér á landi núna. Þá geta Íslendingar fyrr en seinna haldið veislu á ný með góðri samvisku og jafnvel farið á konsert í nýja tónlistarhúsinu ásamt útlenda ferðafólkinu. Vonandi verða einhverjir nýútskrifaðir kandidatar úr íslenskum háskólum þar á meðal.


mbl.is Bréf deCODE hækkuðu um 14%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Í síðustu viku átti að henda þeim út úr Nasdac af því að bréfin höfðu verið  of lengi undir dollar. Hvaða brellur þeir notuðu til að laga þetta, veit ég ekki, en víst er að hér eru einhver örþrifaráð, sem gefa enga mynd af genginu. Með einhverjum leiðum hafa þeir náð að kaupa bréf  í sjálfum sér til að bjarga sér fyrir horn.

Jón Steinar Ragnarsson, 22.9.2009 kl. 03:04

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Mín spá er að þeir hafi fengið einhvern til að gera þetta til að skapa sér nýtt ultimatum, þ.e. árs frest í viðbót með því að koma sér yfir dollarinn og byrja nýtt tímabil.  Þaðkæmi mér ekki á óvart að þeir hrynji því um álíka tölu á næstu dögum.  It's all smoke and mirrors.

Jón Steinar Ragnarsson, 22.9.2009 kl. 03:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband