Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Mikilvægt er að kjósa - Það skiptir vissulega máli

Já, ég ætla að kjósa og nýta atkvæðisrétt minn.

Ef fólk sem hefur hugleitt að sleppa því að kjósa að þessu sinni fer nú samt á kjörstað og kýs þá verður það hluti bylgju sem hefur sannarlega áhrif þegar talningarniðurstöður liggja fyrir.

Allir sem kjósa hafa áhrif. Það er óhjákvæmilegt í þessu lýðræðislega samfélagi okkar Íslendinga og takk fyrir það. Ég ætla að kjósa!


mbl.is Framsókn stærri en Miðflokkurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ég ætla að kjósa"

Vitið þið hvað? Ég ætla að kjósa í alþingiskosningunum 28. október 2017 og nýta þar með lýðræðislegan rétt minn!
Nú, jæja, en hvers vegna? Með aðeins eitt atkvæði í öllu hafi mögulegra kjósenda!?!
Og hvaða gagn hef ég nú af því? Eða þú fyrir þitt leyti ef þú kýst?

Ja, það eru margir sem hugsa á svipuðum nótum og við, hver út af fyrir sig, og ef við drífum okkur á kjörstað þá erum við orðin að hóp sem um munar. Þar með hefur vilji okkar og viðhorf í þeim hópi öðlast tilsvarandi vægi.
Það hefur sín áhrif, og þeim mun meiri eftir því sem fleiri nýta kosningarétt sinn.
Við þurfum bara sem flest að taka þátt og kjósa í samræmi við hug okkar og hjarta, í einlægni. Það góða við það er að enginn sér hvað við kjósum í kjörklefanum. Og við þurfum ekki að segja öðrum frá því hvað við kusum.

Alveg er þetta magnað að búa í lýðræðisþjóðfélagi eins og okkar á Íslandi og geta þess vegna lagt lóð á vogarskálar um val á fólki og stefnu við stjórn landsins; í samræmi við okkar skoðun hvers um sig.
vera þá með í því að velja þingmenn og þjónustulið til þjónustu við okkur almenning í dreifbýli sem þéttbýli og til að búa í haginn fyrir komandi kynslóðir á heilsusamlegan hátt. Og svo getum við ávallt haft samband við þingmenn „okkar“ til að halda þeim við efnið að kosningum loknum. Frábært!


mbl.is Kafað ofan í kannanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loforð virkjunarfjárfesta og lifandi menning

Fari svo að verði virkjað þarna skulu heimamenn gera það að skilyrði að fyrst verði staðið við lofaða uppbyggingu á svæðinu áður en virkjunarframkvæmdir hefjast eða a.m.k. jafnhliða þeim. Dæmi eru um að stórfyrirtæki standa ekki við fögur loforð um uppbyggingu á starfsemi eða öðru úti á landi við uppkaup þeirra eða yfirtöku á rekstri á landsbyggðinni. Talandi um fyrirtæki í sjávarútvegi og vinnslu.

En, hins vegar: Í Árneshreppi og þar um slóðir er Lifandi menning á hverfanda hveli. Hvað vill þjóðin gera í þeim efnum?


mbl.is „Engin glóra“ í Hvalárvirkjun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ókeypis náttúruparadís liggur undir skemmdum

Þessu verður að breyta þar sem svona háttar til, eins og lýst er í meðfylgjandi frétt um slæma umgengni og sóðaskap í einni af náttúruparadísum Íslands.
Tekjur verða að fylgja tilkostnaði. Sá sem ber kostnað af ferðamannastraumi ætti að njóta tilhlýðilegra tekna fyrir.

Ég spyr ágæta og greiðuga landeigendur Hreðavatnslands hvort þeir hafi íhugað að stofna t.d. "Sveitagarð" með einhverri ferðavænni aðstöðu sem þeir síðan gætu haft einhverjar tekjur af til að fjármagna aðstöðu og eftirlit, hliðstætt og eigendur Bláa lónsins hafa gert þar. Þar kemst enginn inn nema þeir sem kaupa sér aðgang að því sem þar er í boði - og fuglinn fljúgandi.

Það er t.d. skömm hópferðafyrirtækja að hagnýta sér þessa aðstöðu án þess að greiða fyrir.
Fyrir utan frábært og fallegt landslag og gróðursælt unaðslegt umhverfi þarna, sem indælt er að ganga um niður að fossinum Glanna og lautarferðastaðnum Paradísarlaut, þá hafa landeigendur látið reisa flottan útsýnispall ofan við fossinn Glanna á sinn kostnað. Fyrir utan annað er hægt að fylgjast þar með löxunum undir fossinum og stórlöxunum á árbakkanum neðar. Mér skilst að landeigendurnir hafi fengið einhverja hungurlús í styrk frá hinu opinbera upp í framkvæmdina á sínum tíma og er það allt og sumt.
Þarna kemur sægur hópferðabíla og ferðafólks á einkabílum daglega yfir allt sumarið og meira en það þannig að oft myndast örtröð á bílastæðinu sem er við golfskála Golfklúbbsins Glanna (GGB). Golfskálinn býður einnig upp á þrifalega salernisaðstöðu sem opin er allan sólarhringinn. Þar er notendum þó í sjálfs vald sett hvort þeir leggi fram einhverja aura fyrir aðstöðuna og fá skálaeigendur þannig lítið fyrir sinn snúð. 

Langlundargeð forráðamanna svæðisins við Glanna í Hreðavatnslandi er aðdáunarvert. Vonandi verður dásamlegt umhverfið þarna ekki skemmt með óhóflegum átroðningi vegna hinna frjálsu ókeypis afnota og eftirlitsleysis.
Þetta á náttúrulega við um aðrar náttúruparadísir þar sem svona háttar til.


mbl.is Slæm umgengni og sóðaskapur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hagvöxtur og mannfjölgunarvandi heimsins

Er óheftur hagvöxtur á heimsvísu lausn alls?

Í frétt á mbl.is 6. júní 2016 með yfirskriftinni „Þrjú börn að minnsta kosti“ er greint frá því að Tyrklandsforseti hafi eindregið hvatt þegna sína og trúbræður til barneigna. Haft er eftir honum „að „engir múslimar“ ættu að íhuga að nota getnaðarvarnir“ og að hann hafi „hvatt konur til þess að eignast að minnsta kosti þrjú börn“. „Við munum margfalda afkomendur okkar“ er haft eftir honum.

Þessi frétt ber með sér að þar fari saman hvatningar íslamsks þjóðhöfðingja, í anda íslam, og kaþólsku kirkjunnar um aukningu barneigna og gegn notkun getnaðarvarna. Fátt er sterkara en hvatningar og trúarleg "lög" og kennisetningar á grunni trúarbragða og hvers kyns innræting um breytni fólks á þeim grunni.

Með slíkum innrætingarhvatningum er skellt skollaeyrum við fólksfjölgunarvanda heimsins sem er ein af frumorsökum ágangs á auðlindir Jarðar og staðbundinnar og hnattrænnar mengunar. Hvað trúboð og áróður, ef ekki valdboð, umrædds forseta varðar í krafti síns embættis sem leiðtoga lands síns hefur það væntanlega einnig einhver áhrif á alla landa hans og trúbræður þeirra hvar sem þeir eru, líka í öðrum löndum Evrópu þar sem þeir eru fjölmennir.

Páfinn ásamt öðrum kaþólskum trúarleiðtogum hefur hliðstæð trúarleg hvetjandi áhrif innan kaþólsku kirkjunnar, hvar í heimi sem hún teygir anga sína.

Spurning er hvernig hægt er að bregðast við þessari hvatningastefnu um barneignir í nafni trúarbragða, ekki síst ofangreindra, áður en fólksfjölgunin og fólksfjöldinn í heiminum verður til slíkrar eyðingar á gæðum Jarðar að skaðinn verði óafturkallanlegur með tilheyrandi hörmungum fyrir allt líf í vistkerfi okkar, Flóru og Fánu.

Reyndar hafa þær skoðanir verið viðraðar fyrir áratugum síðan af fræðimönnum og fólki, sem lætur sig þessi vandamál varða, að í óefni stefni og jafnvel að þegar hafi verið farið yfir mörk hnattrænnar sjálfbærni til lengri tíma litið. Í tímamótaskýrslu á vegum Rómarklúbbsins, The Limits to Growth frá 1972 eftir Dennis L. Meadows o.fl. (í danskri þýðingin Grænser for vækst, Gyldendal 1974), voru dregnar upp dökkar horfur í þessum efnum ef fram færi eins og horfði þá. Sbr. einnig bókin Mankind at the Turning Point eftir Mesarovic & Pestel (í danskri þýðingu Hvilke grænser for vækst?, Gyldendal 1975). Mannfjöldinn í heiminum hefur vaxið með veldisvexti og heldur enn áfram á þeirri braut. Það gengur náttúrulega ekki til lengdar endalaust án hörmulegra afleiðinga.

Lítið raunhæft umfram umræður og ráðstefnur er samt aðhafst í alþjóðasamfélaginu til að stemma stigu við þessari óheillavænlegu þróun.
Fulltrúar þjóðríkja tala á alþjóðlegum ráðstefnum um hnattræn vandamál en ekki virðist þar komist nægilega beinskeytt að rótum þessa vanda, sem er offjölgunarvandamál mannkyns. Lýsandi dæmi um þetta er til dæmis alþjóðleg ráðstefna um sjálfbæra þróun á vegum einnar deildar Sameinuðu þjóðanna, „The Third International Conference on Financing for Development“, sem haldin var í Addis Ababa 13.-16. júlí 2015. Þar voru sett fram 17 stefnumið og þar undir 169 markmið, „Sustainable Development Goals“, sem meðlimalöndin myndu stefna að varðandi velferð Jarðarbúa og sjálfbæra þróun á mörgum sviðum, sbr. The Addis Ababa Action Agenda (AAAA, A/RES/69/313). Þessi markmið voru einnig sundurliðuð í sér skjali þar sem tiltekin áform um tilsvarandi aðferðir og aðgerðir eru tengd við hvert markmið um sig. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna fylgdi niðurstöðum ráðstefnunnar eftir með meðal annars ályktun 22. desember 2015.

Fljótt á litið er þó í þessum gögnum því miður hvergi minnst berum orðum á undirliggjandi offjölgunarvanda mannkyns eða sérstök viðbrögð við honum; eins og hann sé ekki til staðar.

Í viðtalsþætti Sjónvarpsins 14. júní 2016 við umhverfissérfræðinginn dr. Jane Godall kom fram hjá henni að ef allir íbúar Jarðar nytu sömu lífskjara og viðhefðu sama lífsstíl og við Evrópubúar nú þyrfti um fjórar til fimm plánetur á við Jörð til að standa undir og viðhalda þeirri neyslu og auðlindanýtingu. (birt 18.6.2016 á Sarpinum á RÚV).

Til samanburðar sýna útreikningar Global Footprint Network á vistspori („Ecological Footprint“) mannkyns á Jörðu að núverandi notkun auðlinda og losun koltvísýrings krefst ígildis 1,6 Jarða til að viðhalda sjálfbærni. Þar sem við höfum vitanlega einungis eina Jörð sést að í mikið óefni er komið og virkra aðgerða er þörf.

Að hvetja stóran hluta mannkyns til enn hraðari fjölgunar, eins og leiðtogar og fylgjendur ofangreindra trúarbragða gera, þegar þörf er á hinu gagnstæða, er augljóslega óábyrg og veruleikafirrt stefna sem bætir á vanda mannkyns að öðru óbreyttu. Ábyrgð allra þeirra þjóða og alþjóðlegra stofnana sem aðhafast ekki með virkum aðferðum til að stemma stigu við fólksfjölgunarvanda mannkyns er mikil og meiri en orð fá lýst.

Í ofangreindu ljósi ber að huga að nýjum lausnum fyrir vegferð og velferð mannkyns heldur en áframhaldandi óheftum hagvexti á heimsvísu meðan stætt er, en sú feigðarstefna endar að óbreyttu með hörmungum fyrir alla.
Nú er spurning hvort m.a. afleiðingar af „Brexit“ með tilkomandi endurskipulagningu efnahagskerfa landanna geti beint þjóðríkjum heims inn á farsælli brautir í þessum efnum.


mbl.is Obama: Brexit ógnar hagvexti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rökvillan í aðförinni gegn forsætisráðherra

Í raun og veru liggur allt fólkið sem var í samningsliði Íslands gagnvart erlendu kröfuhöfum föllnu bankanna undir ásökun þessa "upphlaupsfólks"; ásökun um samsæri.

Halda mætti að upphlaupsfólkið haldi að forsætisráðherra hafi verið einn um það að semja við hina erlendu hrægammasjóði svokölluðu fyrir sína hönd og fjölskyldunnar persónulega.

Auðvitað er það fjarri öllu sanni! Þar á bekk með honum voru að sjálfsögðu fjölmargir aðrir opinberir aðilar, svo sem í ráðuneytum og Seðlabanka Íslands með seðlabankastjóra í broddi fylkingar, auk ýmissa tilkvaddra sérfræðinga innlendra og erlendra sem veittu ráðgjöf.

Þar sem fjöldinn allur af fólki var saman í því að semja við slitabúin er þar af leiðandi út í hött að halda því fram að einn maður, forsætisráðherra, hefði getað komið einhverjum persónulegum sérhagsmunum þar að. Nema þá og því aðeins að hér hafi átt sér stað eitthvert stórkostlegt samsæri allra þessara aðila gegn hagsmunum Íslands. Það er ekki lýginni líkt!
En ekki er hægt að sjá annað en að ásökun um það felist samt í rökvillu upphlaupsfólksins gegn forsætisráðherra einum.

Furðu sætir að einhverjir af þessum opinberu aðilum skuli ekki hafa lagt orð í belg í þessu máli, þó ekki væri til annars en að þvo af sér áburðinn um þær sakir í þeirra garð um það samsæri sem í ásökunum upphlaupsfólksins felst.


mbl.is Ekki nóg að vera bara reiður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta hringavitleysa hjá ESB?

Í samningi ESB við Tyrklandsstjórn kemur m.a. fram:

"Ef sýr­lensk­ir flótta­menn eru send­ir aft­ur til Tyrk­lands fær sýr­lensk­ur flóttamaður sem er í Tyrklandi að fara í hans stað til Evr­ópu."

Ef Tyrklandsstjórn vill "losna við" flóttamenn og hælisleitendur úr landi sínu þá mun hún alls ekki standa í vegi fyrir fólkinu sem þangað er komið og sem vill fara frá landinu norður til annarra Evrópulanda "út í óvissuna". Ætli Tyrkjar muni þá ekki einmitt fremur hjálpa fólkinu áfram "út í óvissuna"?

Samkvæmt þessum samningi, og ef svona er í pottinn búið hjá glúrnum Tyrkjum, mun því stöðugt fækka í hópnum í Tyrklandi með þessum hætti. Þetta verður þá bókstafleg hringavitleysa þar sem sumt fólk þvælist fram og til baka og annað (Sýrlendingar) til ESB-landa í staðinn.
Eða, er einhver krókur á móti þessu hugsanlega bragði Tyrkja hjá hinu eitursnjalla ESB?
Eða, er þetta e.t.v. einmitt tilgangurinn hjá stjórn ESB, að "smygla" með þessum hætti fólkinu til andsnúinna ESB-landa?


mbl.is Lögðu af stað út í óvissuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kárna nú rökin fyrir katakombuklastrinu við Hringbraut

Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar ritar tilfinningaþrungna grein í Fréttablaðinu í dag, 18.3.2016 bls. 18, þar sem hann hefur margt á hornum sér varðandi hæstvirtan forsætisráðherra Íslands. 
Fyrir utan hnútukast sitt í forsætisráðherra á persónulegum nótum virðist sem aðaltilgangur Kára með þessari grein sinni sé þó að tala fyrir áframhaldandi klastri viðbygginga og endurbygginga við gamla landsspítalann við Hringbraut, ekki síst vegna nándar við kennara í Háskóla Íslands, en fyrirtæki hans sjálfs er eins og vitað er einnig í Vatnsmýrinni.
Hann víkur þó ekki að öðrum mikilvægum þáttum aðgengis að landsspítala þjóðarinnar, svo sem aðgengi starfsfólks, sjúklinga og aðstandenda, og allra aðfanga og frákeyrslu við rekstur spítalans. Þau atriði í heild sinni vega þó miklu þyngra kostnaðarlega og tímalega séð fyrir alla aðila.
Gerir Kári lítið úr viðleitni forsætisráðherra til að leita vitrænna og hagkvæmra lausna varðandi staðarval fyrir landsspítala, í stað fyrirhugaðs klasturs við Hringbraut sem byggir á nú úreltum forsendum.

Furðuleg eru þau "rök" sem Kári tínir til, til varnar hinum úreltu forsendum um áframhaldandi klastur við gamla spítalann með tilheyrandi tengigöngum eins og í hinum fornu katakombum í Róm, enda halda þau ekki vatni.

Til dæmis sneiðir hann gjörsamlega hjá því að ræða samanburð á kostnaði við aðra valkosti og það að sýnt hefur verið fram á að nýr og betri spítali á betri stað yrði mun hagkvæmari en fyrirsjáanlegt katakombuklastrið við Hringbraut, svo tugum milljarða króna skiptir. Kostnaður við opinberar fjárfestingar og rekstur hefur þó hingað til þótt mikilvægt atriði við ákvarðanir þar að lútandi og það þótt um miklu lægri upphæðir væri að tefla heldur en fyrir nýjan landsspítala.
Þó bendir hann á að vegna þess að búið sé að eyða svo miklum fjármunum í allan undirbúning bútasaumsins við gamla spítalann við Hringbraut þá verði að halda áfam með þau áform.
Svona sjónarmið eru dæmigerð rekstrarhagfræðileg rökvilla sem tekin er fyrir í byrjendanámskeiðum í þeim fræðum um tegundir kostnaðar og ákvarðanatöku í því sambandi. Leitt er til þess að vita að forstjóri í einu af stórfyrirtækjum landsins skuli detta í þá rökvillugryfju.

Þá heldur Kári því fram að "flestir starfsmenn" spítalans hafi bundist staðnum "sterkum tilfinningaböndum" sem ekki sé réttlætanlegt að rjúfa! - Nú væri afar fróðlegt að gerð væri leynileg atkvæðagreiðsla meðal starfsmanna spítalans um þessa fullyrðingu til að kanna hvort hún standist, út af fyrir sig. Telja má ólíklegt að "flestir" starfsmenn vildu fremur starfa áfram í gamla kraðakinu ef í boði væri að flytja starfsemina í nýja heilsteypta sjúkrahúsbyggingu, hannaða frá grunni, og starfa þar framvegis í stað þess að týna sér í rangölum væntanlegra katakomba milli margra sjúkrahúsbygginga við Hringbraut. Og komast jafnvel fyrr í nýjan spítala á betri stað heldur en bútasaumnum lyki í þrengslunum við Hringbraut. Og komast þar með hjá því að leggja á sig sjálfa og sjúklingana og aðra sprengigný með tilheyrandi skjálftum og vélaskarki og útblástursmengun sem allir hafa þegar fengið smjörþefinn af.

Hvaða stjórnmálamenn aðrir en e.t.v. lið og bakland núverandi heilbrigðisráðherra myndu vilja fleygja þeim tugum milljarða króna af skattafé landsmanna í úrelt Hringbrautardæmið, sem hægt væri að spara með því að byggja nýtt sjúkrahús á betri stað, til þess meðal annars að þjóna meintum "sterkum tilfinningalegum" og sjálfpínandi tengslaböndum starfsfólks við gamla staðinn?

Í grein sinni ræðir Kári ekki vaxandi vandræðin tengt samgöngum kringum spítalann við Hringbraut samanborið við það að hafa hann staðsettan í þungamiðju íbúabyggðar, samgönguæða og samgangna á höfuðborgarsvæðinu, enda heldur hann því fram að eiginleiki spítala varðandi staðsetningu hans sé "ekki endilega sá sem mestu máli skiptir". Ýmsir aðrir skynsamir menn myndu hins vegar væntanlega telja að staðsetning spítala væri eitt af lykilatriðunum við starfsemi sjúkrahúss.

Kárna nú rökin fyrir katakombuklastrinu við Hringbraut á úreltum og röngum forsendum.


mbl.is Segir Sigmund í stjórnarandstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vegið að öllu samningsliði Íslands

Ýmsir aðilar, "upphlaupsfólk", þar á meðal fólk í stjórnarandstöðu og sumir fjölmiðlar, hófu í gær upphlaup nokkurt gegn forsætisráðherra og fjölskyldu hans, og þar með óbeint einnig öðrum hlutaðeigandi aðilum opinberum, er varðar uppgjörið við slitabú föllnu bankanna og þar með hina svokölluðu erlendu hrægammasjóði.
Í því sambandi er vert að benda á eftirfarandi atriði:

Halda mætti að upphlaupsfólkið haldi að forsætisráðherra hafi einn á bekk verið að semja við hina erlendu hrægammasjóði svokölluðu fyrir sína hönd og fjölskyldunnar persónulega.
Fjarri fer því!
Þar á bekk voru að sjálfsögðu fjölmargir aðrir opinberir aðilar, svo sem í ráðuneytum og Seðlabanka Íslands með seðlabankastjóra í broddi fylkingar, auk ýmissa tilkvaddra sérfræðinga innlendra og erlendra sem veittu ráðgjöf.
Þar sem fjöldinn allur af fólki var saman í því að semja við slitabúin er þar af leiðandi út í hött að halda því fram að einn maður, forsætisráðherra, hefði getað komið einhverjum persónulegum sérhagsmunum þar að.

Með því að ásaka forsætisráðherra um linkind gagnvart hrægammasjóðunum, kröfuhöfum bankanna, þá er upphlaupsfólkið í reynd að ásaka allan þennan hóp í samningsliði Íslands um hið sama! Í reynd er vegið að öllu samningsliði Íslands sem tók þátt í undirbúningi samningsdraga og -gagna og samningum við slitabúin. Ætli upphlaupsfólkinu hafi sést yfir þá staðreynd?

Það hlýtur að mega búast við því að eitthvað heyrist frá öllum þessum aðilum í samningsliði Íslands í tengslum við afnám hafta og uppgjörið við slitabúin, sjálfum sér og þar með forsætisráðherra til varnar og til að hreinsa sig og ráðherra af áburðinum.

Fyrir utan ofangreint atriði hafa ýmsir bent á fjölmörg atriði í hnotskurn um ágallana í málatilbúnaði upphlupsfólksins gegn forsætisráðherra og fjölskyldu hans, sem ég læt vera að tíunda hér, en sem sjá má á ljósvakamiðlum ýmsum.


mbl.is Vissi ekki um kröfur félagsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landsspítali í nálægð Reykjavíkurflugvallar - eftir sem áður

Hvort heldur sem nýtt og betra sjúkrahús á betri stað yrði að Vífilstöðum, eða nálægt krossgötunum við Elliðaárvog eða öðrum slíkum í jaðri Reykjavíkur, þá yrði það nálægt flugvellinum í Vatnsmýrinni.
Sjúklingar þangað skilað með flugi yrðu eftir sem áður miklu nær spítalanum þar heldur en með flugi til alþjóðlega flugvallarins í Keflavík.

Það ætti að vera augljóst mál, þótt sumir eigi ef til vill erfitt með að átta sig á merkingu orðsins "nálægt".
Landsspítali í Reykjavík eða jaðri hennar er nálægt Reykjavíkurflugvelli, en margfalt fjær Keflavíkurflugvelli.


mbl.is Framsókn áfram flugvallarvinur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband