21.1.2010 | 21:36
Meira breskt efni í staðinn?
Samkvæmt þessum upplýsingum er verið að minnka innlent efni með því að segja upp dagskrárgerðarfólki.
Verður þá ef til vill aukinn gjaldeyrissogandi innflutningur á "skemmtiefni" í staðinn? Jafnvel bresku efni?
Þá verður a.m.k. Bretunum skemmt! Ætli einhverjum Íslendingum verði þá líka skemmt?
![]() |
Margir missa vinnuna á RÚV |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 22.1.2010 kl. 01:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2010 | 10:33
Berjið ekki höfði við stein!
Forsætisráðherra og stuðningslið hennar er enn við sama heygarðshornið og eru greinilega öllsömul búin að berja höfði sínu við þann stein sér til óbóta.
Það örlar ekkert á baráttu fyrir hagsmunum Íslands og því að færa umræðuna upp úr þessu spólfari sem forsætisráðherrann klifar sífellt sömu bresk-hollensku tugguna í. Alltaf sama undanlátssemin á röngum forsendum. Á þessu verður að verða breyting áður en það verður um seinan.
Þau virðast ekki skilja eða vilja ekki skilja, nema hvort tveggja sé, að koma þarf umræðunni í þann réttsýna farveg að öll löndin sem hlut eiga að máli bera ábyrgð. Ekki bara Ísland, eins og forsætisráðherrann og skilningsvana eða forhert lið hennar klifar á í takt við kröfur Breta og Hollendinga og annarra landa sem vita sökina upp á sig.
Ríkisstjórnin skal átta sig á því að sá mikli meðbyr sem hún hafði í upphafi valdatíðar sinnar varir ekki heilt kjörtímabil við þennan andbyr hennar og aðgerðaleysi í að taka upp baráttu fyrir hagsmunum Íslendinga á erlendum vettvangi. Það er miður fyrir þann mikla hluta almennings og kjósenda sem bundu vonir um betri og breytta tíð við hana. Það voru miklar vonir og væntingar. Þær eru við að gufa upp.
Það stefnir í háan reikning sem þjóðin mun gera fráfarandi ríkisstjórn og liðsmönnum hennar við næstu kosningar ef fram fer sem horfir.
Hættið að berja höfði við stein og gjörið svo vel að bretta upp ermarnar og takið slaginn við erlendu þjóðirnar gegn ranglætinu sem þær hafa verið að bræla yfir okkur!
![]() |
Icesave skaði ekki alþjóðleg tengsl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.1.2010 | 12:13
ó-Frumkvæði ríkisstjórnarinnar
Hvaða uppbyggilega frumkvæði hefur ríkisstjórn Íslands í Icesave-málinu?
Gerir hún sér ekki grein fyrir meðvindinum sem hefur verið að skapast með málstað Íslendinga erlendis?
Gerir hún sér ekki grein fyrir því að tíminn er dýrmætur í því sambandi?
Gerir hún sér ekki grein fyrir því að það er hagsmunum Íslands til framdráttar að sinna þeim?
Af hverju bregst hún ekki við með viðeigandi hætti?
Hverju gerir íslenska ríkisstjórnin sér eiginlega grein fyrir?
Vonandi fer ríkisstjórn Íslands að átta sig betur á málinu!
![]() |
Engar viðræðuóskir frá Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
17.1.2010 | 13:27
Einhver lesi þetta fyrir ólæsa ríkisstjórn
Þar sem forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar virðast ekki geta lesið svona fréttir né hafa tíma til að hlusta á þær þegar þær birtast í fjölmiðlum eða þáttum sem þessum þá þarf einhver hreinlega að lesa þetta fyrir þá og útskýra hvað þetta táknar ef þeir skilja það ekki í fyrstu umferð.
Ekki er að treysta svokölluðum fjölmiðlafulltrúum ráðuneytanna né aðstoðarmönnum ráðherra vegna þess að þeir virðast vera einhvers staðar annars staðar í fullu starfi en að fylgjast með þessu og koma því til skila. Suma virðist mega finna á kafi í vinaöflun á Facebook ef marka má fréttir, og veitir þeim svo sem ekki af, en eitthvað hafa þeir og yfirboðarar þeirra misskilið starfsskyldur þeirra.
Það sem hér kemur fram eru margir bloggarar búnir að vera að skrifa um í pistlum sínum undanfarið og undanfarið ár, sbr. pistlar hér um meðvinda sem þennan og hvernig ber að nýta þá.
![]() |
Aukin gagnrýni í Bretlandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.1.2010 | 21:03
Rangt svar! Drekka fremur annan drykk!
Hið augljósa svar er að drekka annan drykk! Það þarf hins vegar að laga hann fyrst, búa hann til.
Við erum að tala um nýjan málatilbúnað sem þjóðin getur kyngt! Reynið nú að fara að hugsa út fyrir kassann!
![]() |
Betra en að deyja úr þorsta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.1.2010 | 02:30
Meðvindur fyrir nýjan málatilbúnað
Það eru einmitt svona raddir í herbúðum gagn-málsaðila sem íslenska ríkisstjórnin þarf að notfæra sér hagsmunum Íslands til framdráttar.
Byggja upp málatilbúnað á þeim forsendum að önnur lönd beri sína sök í Icesave-málinu, ekki bara Ísland.
Og, setja upphæðirnar sem um ræðir í þetta samhengi sem hér um ræðir.
Með slíkum málatilbúnaði og meðvindi skilningsríkra og réttsýnna erlendra aðila er hægt að setja dæmið upp þannig að öll löndin þrjú sem hingað til hafa deilt græði, hvert á sinn hátt. Um það hef ég rætt í öðrum pistli um win-win-win-stöðu fyrir Ísland, Holland og Bretland.
Við það að koma almenningi í Bretlandi og Hollandi í skilning um þann málatilbúnað myndi hann væntanlega snúast á sveif með sjónarmiðum Íslendinga og þrýsta á sínar ríkisstjórnir um aðra lausn en þær hafa verið að neyða upp á Íslendinga. Niðurstaðan væri sú að þegar þannig væri komið væri það ávinningur fyrir Breta og Hollendinga að fallast á sanngjarna lausn fyrir Íslendinga.
![]() |
Bretar og Hollendingar hætti einelti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.1.2010 | 17:53
Eru bara ESB-löndin í "alþjóðasamfélaginu"?
Halda mætti að framkvæmdastjórinn sé að reyna telja fólki trú um að "alþjóðasamfélagið", sem hann ber fyrir sig, sé bara ESB-löndin, þ.e. þau sem hafa verið með yfirlýsingar gegn Íslandi.
Hafa t.d. NAFTA-löndin (Kanada, Bandaríkin og Mexíkó) og Asíu-blokkin með Kína, Japan, S-Kóreu og Indland innanborðs, og Rússland, og Mið-Austurlönd og Afríka verið með hótanir eða aðrar yfirlýsingar um þessi mál gegn Íslandi?
Þ.e.a.s. lönd í öðrum álfum en Evrópu?
![]() |
Stuðningur alþjóðasamfélagsins nauðsynlegur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.1.2010 | 15:38
Hnefann í borðið!
Þarna örlar á réttum málatilbúnaði hjá forsætisráðherranum, um að götóttu regluverki ESB sé um að kenna um Icesave-ófarirnar.
Ganga þarf alla leið: Hnefann í borðið og yfirlýsingu um að ESB-löndin BERI ábyrgð ekki síður en Ísland og miklu meiri.
Ísland hefur staðið og mun standa við sínar skuldbindingar.
Þær skuldbindingar innifela ekki að Íslandi einu beri að greiða alla upphæðina sem um er deilt í Icesave-málinu.
Það kann að vera að Jóhanna skilji reiði almennings í Hollandi og Bretlandi, en hún virðist ekki skilja reiði almennings á Íslandi.
![]() |
Jóhanna skilur reiði almennings |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þessi frétt af ábúðarmiklum forsætisráðherra Svíþjóðar með yfirlýsingu sína og samherja sinna sýnir að ríkisstjórn Íslands hefur ekkert orðið ágengt í að halda málefnastöðu Íslands á lofti í Icesave-málinu.
Eða, það sem líklegra er, að hún hefur ekki verið að byggja upp málatilbúnað sem sýni fram á að ESB-löndin með sitt götótta regluverk eru sjálf sá sökudólgur sem þau eru að telja Íslandi og umheiminum um að Ísland sé.
Þarna er þykjustuleikur fulltrúa ríkisstjórnarinnar undanfarna daga afhjúpaður sem gagnslaust hjal um ranga hluti.
Sænski forsætisráðherrann gerir sér ábyggilega grein fyrir því að alþjóðagjaldeyrissjóðurinn muni draga lappirnar með aðstoð sína þar til Icesave-málið er leyst á þeim nótum sem Evrópuþjóðunum hugnast. Þær nótur eru óhagstæðar Íslandi eins og er. Semja þarf nýjar nótur, nýjan söng, með nýjum málatilbúnaði sem gerir að verkum að ESB-löndin neyðist til að ræða málið á öðrum forsendum en þeim sem haldið hefur verið að Íslandi hingað til.
Það er óþolandi að ríkisstjórnin skuli ekki nýta þann velvilja og meðbyr sem örlað hefur á undanfarna daga á erlendum vettvangi til að leggja fram nýjan málatilbúnað á forsendum hagstæðum Íslandi.
![]() |
Reinfeldt: Ákvörðun AGS forsenda fyrir láni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.1.2010 | 13:36
Hamast með röng vopn
Einn af bloggurum um þessa frétt ritar meðal annars:
"..og íslensk stjórnvöld vita ekki hvað þau eiga að gera til að þoka málinu af stað á ný.."
Það er málið! Það er morgunljóst hvað ríkisstjórninni ber að gera en hún þverskallast við að gera það, skilur það ekki, eða vill ekki skilja það. Hún berst ekki á réttum vígvelli og í stað rökréttra vopna sem bíta notar hún uppgjafarsöng og afsakandi bros þá sjaldan að hún opnar munninn við útlendinga.
Í þessari frétt er sagt frá því að utanríkis- og fjármálaráðherrar Íslands hafi verið að ræða við starfsbræður sína erlendis. Stóra spurningin er um hvað þeir eru að ræða, hvort það sé sami undirlægju- og uppgjafarsöngurinn eða hvort þeir séu að útskýra forsendur Íslands um að Íslendingar séu ekki hinir einu sem greiða eiga Icesave-kröfur, heldur ber götótt regluverk ESB þar sök.
Margar ábendingar hafa komið um það sem ríkisstjórn Íslands ber að gera til að reynast starfi sínu og ábyrgð vaxin og bendi ég á eina grundvallarnálgun í pistli mínum Win-Win-Win fyrir Ísland, Holland og Bretland.
Þetta þarf ríkisstjórnin að vinda sér í að gera og hætta útburðarvæli sínu Bretlandi og Hollandi til dýrðar "yfir kaffibolla" heima fyrir, eins og það heitir í hádegisfréttunum af henni í dag 14. jan. 2010.
![]() |
Stopp í Icesave-málinu þessa dagana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)