Grímulaus skerðing tjáningarfrelsis og tjáningarleiða. Hvað segja Forman og Kant? Íslenska AGS-dæmið.

Þetta er einum of grímulaus aðför að varnarlausum almenningi. Þetta hljómar eins og veislubrandari en býr í haginn fyrir það að útiloka blogg og önnur tölvuskeyti milli manna eftir geðþótta yfirvalda (Rockefellers og slíkra). Sjálfsagt heitir þetta á yfirborðinu að koma vörnum við gegn meintum hryðjuverkamönnum sem liggja undir grun, en þaggar um leið niður í almenningi sem tjáir sig um þjóðfélagsmál og stjórnmál og heldur uppi gagnrýni á stjórnvöld.

Í þessu sambandi má benda á afar athygliverða blaðagrein um viðtal við Milos Forman kvikmyndaleikstjóra í Morgunblaðinu sunnudaginn 23. ágúst 2009, s. 18-19. Þar greinir hann m.a. frá reynslu sinni af að lifa í þjóðfélögum bæði nasisma og kommúnisma. Greindi hann frá þeirri skoðun sinni að lykilatriði eftir valdatöku Hitlers og nasista í Þýskalandi á fjórða áratug 20. aldar var að ná fjölmiðlum heima fyrir strax á sitt vald, "múlbinda þá", og stjórna alfarið hvað í þeim birtist. Þá er greið leið til að miðla fréttum og upplýsingum sem þóknast yfirvöldum og sleppa því sem gæti afhjúpað myrkraverk þeirra og tafli þeirra með óupplýstan almenning. "Sannleikurinn" er þar með búinn til og þegnarnir verða eins og strengjabrúður sem haga sér í samræmi við hann, en hafa verra af ella. Forman segir að "frjálsir fjölmiðlar og tjáningarfrelsi er mikilvægasta uppfinning lýðræðisins".

Hvernig er ástandið í þessum málum hér á Íslandi í dag? Góð spurning!

Tökum aðeins eitt dæmi sem snertir eitt lykilatriði í umræðunni um efnahagsmálin hérlendis núna: Hvers vegna kemur ekki fram haldbær skýring á hávaxtastefnunni sem rekin er gegnum Seðlabankann? Seðlabankastjórar hafa komið fram á nokkurra vikna fresti og farið með sömu rulluna í véfréttastíl um að halda þurfi uppi háum vöxtum til að ná niður verðbólgu og til að laða að erlent fjármagn til landsins og halda því sem hér er þegar og þar með til að rétta efnahagslíf landsins af, gera fjármálastefnu landsins trúverðuga í augum umheimsins o.s.frv. -
Á meðan er verið að rústa efnahagslífi landsins sem halda átti á lífi með þessari stefnu! Hávaxtastefnan er að gera fyrirtæki og heimili og skuldaþjáð fólkið sem þar hefur dvalið gjaldþrota. Þeir sem hlífa skyldi eru látnir borga fyrir afleiðingar þessarar stefnu. Almenningi hefur verið gert að trúa þessu og fræðimenn sem ættu að vita betur tjá sig ekki um málið eða ekki að öllu leyti.

Hvar eru allir aðrir starfsmenn Seðlabankans, allir prófessorar og kennarar í t.d. hagfræðum og þjóðfélagsfræðum og heimspeki í háskólum landsins, allt opinberir starfsmenn? Af hverju tjá þeir sig ekki um málið og önnur mál sem brenna á þjóðinni núna svo eftir verði tekið í ræðu og riti? Til dæmis hér á blogginu, sem væri auðveldasta leiðin og sú fljótvirkasta og gæti náð til sem flestra landsmanna! Eru þeir allir sammála þessum rökum og meinvillum? Eða hefur þeim verið bannað að tjá sig á opinberum vettvangi? Þora þeir það ekki? Er þeim gerð ber grein fyrir því að áskrift þeirra á mánaðarlaunum frá ríkinu gæti verið í hættu ef þeir tjá sig?
Á þessu eru þó einstaka undantekningar og spurning er hvort það sé þá vegna þess að þeir flytji mál sem falla stjórnvöldum vel eða þeir telji sjálfir að svo sé.

Ég bendi þessu ágæta og menntaða fólki og öðrum á grundvallarrit um rétt opinberra starfsmanna til að tjá sig sem sérfræðingar utan starfs síns, þ.e. ekki sem embættismenn, heldur sem einstaklingar; Það er ritið "Svar við spurningunni: Hvað er upplýsing?" eftir Immanuel Kant (1724-1804), samið í einveldisríkinu Prússlandi 1784. Ritið er til á íslensku og var birt í Skírni nr. 167, 1993, s. 379-386. Kant segir þar í upphafi greinarinnar:

"Upplýsing er lausn mannsins úr viðjum þess ósjálfræðis sem hann á sjálfur sök á. Ósjálfræði er vanhæfni mannsins til að nota eigið rökvit án handleiðslu annarra. Maðurinn á sjálfur sök á þessu ósjálfræði þegar orsökin er ekki skortur á hyggjuviti heldur vöntun á einurð og hugrekki til að nota hyggjuvit sitt án handleiðslu annarra. Einkunnarorð upplýsingarinnar eru því "Sapere aude!", hafðu hugrekki til að nota þitt eigið hyggjuvit!"

Áfram með hávaxtadæmið og AGS:
Þegar við blasir að hávaxtastefnunni er haldið til streitu þrátt fyrir landeyðinguna sem af henni hlýst núna þá berast böndin að annarri ástæðu en þeirri að óskynsemi ráði ríkjum í Seðlabankanum, þ.e.: Íhlutun og fyrirmæli Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS), International Monetary Fund (IMF)!

Þá kemur stóra málið sem þjóðin á rétt á að vera upplýst um og fá að tjá sig um og velja hvaða leiðir hún vill fara:
Er sú stefna sem mörkuð er af AGS og ríkisstjórnin og Seðlabankinn eru skikkuð til að framfylgja út í ystu æsar yfirhöfuð besta leiðin fyir íslensku þjóðina? Það hefur mér vitanlega enginn lagt fram opinberlega heildstætt atburðayfirlit (scenario) yfir hvað yrði líklega upp á teningnum ef leið AGS yrði hafnað; hvort líklegt er að sama landeyðingin og þrælafjötrar yrðu útkoman til lengri tíma litið eins og líklegt er að verði afleiðingin af stefnu AGS. Ég hygg að svo verði ekki. Sú leið yrði á forsendum íslensku þjóðarinnar en ekki erlendra ríkja og efnahagskerfa þeirra.

Í þessu sambandi er vert að benda á afar athygliverða grein í Morgunblaðinu í dag, 30.8.2009, s. 36, eftir Gunnar Skúla Ármannsson lækni: "Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn klikkar ekki". Í greininni dregur Gunnar upp skýra mynd í grófum dráttum af venjubundinni atburðarás í þeim löndum sem AGS "veitir aðstoð" til: AGS kemur til skjalanna þegar efnahagskerfi lands er strandað og bankar gjaldþrota, fyrirskipar háa stýrivexti, sem leiðir til gjaldþrots fyrirtækja og heimila í stórum stíl, fyrirskipar mikinn niðurskurð í ríkisútgjöldum s.s. heilbrigðiskerfi og tryggingakerfi samhliða einkavæðingu sem leiðir til verðhækkana á þeirri þjónustu og til atvinnuleysis og enn verra ástands og meiri skuldsetningar almennings. Að lokum verður farið í að selja það sem til er verðmætt í landinu, þ.e. auðlindir þess. Þar með eru þjóðinni allar bjargir bannaðar og hún getur aldrei greitt lán sín, bara rétt skrimt. - Er þessi rás atburða ekki farin að minna óþyrmilega á það sem hefur verið að gerast hér á Íslandi?

Í stuttu máli hafa inngrip AGS gjarnan orðið til þess að sjálfbærni landa hefur glatast við það að auðlindir þeirra, sem eru lykill að sjálfbærni þeirra, komast í hendur annarra landa og/eða að innlendar framleiðsluafurðir þeirra eru fluttar út til að greiða fyrir skuldir. Fátækt og eymd ríkir þar eftir í landinu meðan arðránsþjóðirnar lifa í vellystingum. (Ég tek það fram að þessum orðum er ekki ætlað að vera einhver "kommúnistaáróður", fjarri fer því, heldur að benda á grundvallarvalkosti sem þjóðin stendur frammi fyrir núna, sumpart í framhaldi af pistli mínum um íslenskar lífslindir og lífsstíl). 

Góð innlegg í þessi mál eru margar greinar í bókinni "Christianity and Ecology: Seeking the well-being of earth and humans", 2000. (Frábær bók með greinum eftir ýmsa höfunda um umhverfissiðfræði, afleiðingar hagvaxtar á umhverfið o.fl. Fékkst í Bóksölu stúdenta, Rvík). Þar má benda á greinar í þessu sambandi sem koma inn á hrikalegar afleiðingar "björgunarstarfs" IMF í ýmsum löndum, t.d. "Population, Consumption, Ecology: The triple problematic" eftir Daniel C. Maguire sem bendir á t.d. hvernig landrýmissnauð lönd eins og Holland haga sér gagnvart fátækum löndum til að komast yfir afurðir þeirra (á s. 408-409). Einnig greinin "Christianity, Economics and Ecology" eftir John B. Cobb jr., sem kemur inn á völd alþjóðastofnana eins og IMF og World Bank og fjölþjóðlegra fyrirtækja (á s. 509-510) í þessu sambandi.

 


mbl.is Forsetinn geti lokað Netinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Lárusson

Hef mikið verið að benda á þetta mál með IMF, en allar ráðleggingar þeirra leiða bara til skulda. Til dæmis þessi að auka gjaldeyrisforða með skuldsetningu svo hægt sé að styrkja krónuna. Þetta getur aldrei gengið þar sem við myndum ekki eign vegna vaxtanna og þar með veikist krónan sjálfkrafa og skuldsetning eykst. Við getum ekki lifað þetta af. Bendi fólki á að horfa á myndina Money as debt http://video.google.com/videoplay?docid=-2550156453790090544 en hún skýrir mjög vandann sem við stöndum frammi fyrir varðandi þetta kerfi sem við búum við.

Við þurfum að horfa til orsakan að þessum vandræðum okkar, en lausnin liggur í því að taka upp nýtt fjármagnskerfi, en ég hef líka skrifað nokkuð um það, sjá t.d. hér http://jonl.blog.is/blog/jonl/entry/926292/ 

Jón Lárusson, 31.8.2009 kl. 11:14

2 Smámynd: Kristinn Snævar Jónsson

Kenning Seðlabankans og þeirra sem aðhyllast hana um að fara þurfi þá leið að auka gjaldeyrisvaraforðann í þeim tilgangi að styðja við krónuna þegar höftum verður létt af henni byggir á röngum forsendum, eða þá verið er að beita blekkingum.

Mér finnst það afar líklegt að þeir sem liggja með krónur reyni umsvifalaust að skipta þeim í erlendan gjaldeyri strax og færi gefst m.a. vegna þess að þeir reikna með að krónan veikist enn frekar með tímanum. Reyni Seðlabankinn að sporna á móti og selja enn meir gjaldeyri klárar hann dýran varasjóðinn og verður að hætta við tilraunina, alveg eins og gerðist með tilraun Seðlabankans, er fyrrverandi seðlabankastjóri var enn við stjórnvölinn. Hins vegar hagnast þeir sem voru og verða svo heppnir að fá krónunum skipt í gjaldeyri. Þá vaknar spurningin um hverjir það voru þá og hverjir það verða næst. Þessi fyrirhugaða aðgerð verður því dýrkeypt fyrir Seðlabankann og þjóðina og til einskis gagns, bara ógagns.

Það eina sem dugar í núverandi kerfi til að halda jöklakrónunum kyrrum eru gjaldeyrishöft, en ekki háir stýrivextir. Þess vegna ætti að fara aðra leið en feigðarleiðina sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn fyrirskipar og Seðlabanki og ríkisstjórn virðast fylgja fast eftir eins og óvita lömb á leið til slátrunar.

Hefur það komið fram einhvers staðar hvers konar aðilar fengu gjaldeyrinn á gjafverði þarna í haust?

Að ætla sér að fara krónufleytingarleið með gjaldeyrisvarasjóðinn að baki og til útdeilingar er feigðarflan.

Ég hef annar staðar ritað pistla um landeyðandi afleiðingar hávaxtastefnunnar og er ég ekki sá eini sem ritað hef á þann veg.

Kristinn Snævar Jónsson, 1.9.2009 kl. 17:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband