2.4.2010 | 16:21
Engin píslarganga
Þetta er vonandi engin píslarganga hjá fólkinu á þessum yndislega stað, að ganga úti í Guðs hvítri náttúrunni í kyrrð og ró; Hver með sjálfum sér og því sem býr hið innra og í góðu samfélagi hið ytra.
Og, hvergi sér á "dökkan díl"! Píslir og pína eru sem betur fer foknar út í veður og vind - og koma ekki aftur nema opnað sé fyrir þeim í huganum eða annars staðar.
Það er eins og vera ber.
Betra er að tileinka sér það viðhorf á lífsins gangi að lifa fremur en að líða, sbr. pistil minn um það fyrr í dag.
Píslarganga við Mývatn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Lífstíll, Trúmál, Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 16:22 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.