Færsluflokkur: Bloggar
30.1.2013 | 11:43
Ef svæði 101 væri rafmagnslaust?
Hver yrðu viðbrögð ráðamanna ef rafmagnslaust yrði eða slitrótt rafmagns- og símasamband væri í gamla miðbænum í Reykjavík og uppeftir Hverfisgötu þar sem megnið af stjórnarráðinu, þar með talið Alþingi, og lögreglustöðin eru? Og stutt í svæði miðstöðvar almannavarna! Og í marga daga!
Þeir skyldu hugleiða það eins og þeir hafa getu til.
Fólk sem heldur landinu í byggð utan Reykjavíkur er jafn mikið fyrsta flokks eins og Reykvíkingar, ekki minna!
Landsbyggðarfólk, sem eru Íslendingar eins og Reykvíkingar og með sama stjórnarskrárvarða rétt eins og þeir, eiga ekki skilið það öryggisleysi og óþægindi sem umrædd óáran í viðhangandi frétt felur í sér.
![]() |
Bregðast verður við strax |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.1.2013 | 10:17
Hvaða fáni? Hvaða skel? Hvaða bjáni? Hvað ég vel?
![]() |
48,5% vilja ljúka viðræðum við ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.12.2012 | 11:20
Afstaða með hinu góða gegn hinu illa
Kolbrún Bergþórsdóttir ritar góðan og síþarfan pistil í Morgunblaðið í dag, 20.12.2012 s. 24, sem ber yfirskriftina "Trúin og blóm við dómkirkju". Þar bendir hún m.a. á nauðsyn þess að standa með hinu góða og hafna því illa, sérstaklega þegar áföll dynja yfir, svo sem hryðjuverk af manna völdum eins og í Noregi í fyrra og í Bandaríkjunum nýverið. Fólk bregðist við á mismunandi hátt og hafi mismunandi aðferðir við það. Sumir sæki í trú sína og finni þar huggun í trúarskoðunum sínum. Annað vel innrætt fólk sýni einfaldlega jákvæð viðbrögð og samhygð af því að það er því eðlilegt. Það hafi jákvæða afstöðu til lífsins og trúi "á góð öfl í tilverunni og vilji standa með þeim"; Þrátt fyrir úrtöluraddir samtaka sem sé "í nöp við kristna trú og kirkju", en þau eigi ekki upp á pallborðið hjá fólki sem sé einfaldlega gott og leggi t.d. blóm við kirkju til að sýna samhug með þolendum voðaverka í verki og gegn illskunni.
- Þetta eru spekiorð sem Kolbrún fer hér með.
Menn geta endalaust deilt um trú og trúarbrögð og sannleika í því sambandi, enda fer sú umræða oft fram á röngum forsendum.
Hitt er annað að heiðarlega iðkuð trúarbrögð sem er einnig heiðarlega stjórnað eru eitt sterkasta og áhrifaríkasta "tækið" eða aðferðin til að móta siðferðislega, jákvæða og uppbyggilega afstöðu einstaklinga gagnvart hver öðrum í mannlegu samfélagi til að viðhalda sátt og friði. Á þetta hafa félagsfræðingar eins og Emile Durkheim (1858-1917) bent. Landslög um siðferðisleg málefni þurfa þó vissulega einnig að vera til staðar, þeim til leiðsagnar, eftirbreytni og ögunar sem siðblindir eru. Um það ritaði t.d. Lúter (1483-1546) á sínum tíma, en það ætti að vera augljóst öllum mönnum í dag.
Sem betur fer gerir þorri fólks sér grein fyrir muninum á góðu og illu og tekur afstöðu með hinu góða og gegn hinu illa eða illskuverkum. Það virðist því dálítið öfugsnúin afstaða hjá afmörkuðum trúarandstæðum hópum eða öðrum sem segjast hafa uppbyggilega og jákvæða siðmenningu að leiðarljósi að berjast gegn stórum hópum trúaðra í stað þess einfaldlega að leggjast á árarnar með þeim sem liðsmenn hins góða í altækri baráttunni gegn hinu illa; Hver eftir sinni leið að sama marki.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.11.2012 | 12:40
Samstaða er rökrétt framhald
Í ljósi forsögunnar á pólitískum vettvangi hlýtur rökrétt framhald hjá Bjarna vera Samstaða flokkur lýðræðis og velferðar.
Bjarni er búinn að reyna Framsóknarflokkinn og Vinstri græna og e.t.v. eitthvað fleira. Varla er Samfylkingin með ESB-stefnu sína kostur fyrir Bjarna, né meintir taglhnýtingar þess flokks undir nýjum nöfnum og enn síður Sjálfstæðisflokkurinn og Hægri grænir; Eða hvað?.
Þess vegna ætti Samstaða með lausnamiðaða stefnu sína með þjóðarhagsmuni og almenningshagsmuni að leiðarljósi, bæði fyrirtækja, heimila og einstaklinga, að vera fýsilegur og góður kostur. Þar er ekki talað um vinstri eða hægri, heldur viðeigandi lausnir með heildarhagsmuni fyrir augum og raunverulegt frelsi einstaklingsins til orða, athafna og mannsæmandi lífskjara.
![]() |
Bjarni farinn úr VG |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.11.2012 | 11:57
Menningarleg innræting og alræðisvald
Frétt um óhugnanlegt morð á 14 ára unglingsstúlku, þar sem gerendur eru sagðir tveir bónleiðir karlmenn er biðluðu hennar við föður hennar, vekur upp spurningar um hvernig svona lagað getur átt sér stað. Við sem Vesturlandabúar, sem hérlendis byggjum á siðrænum lúterskum menningararfi, hneykslumst stórum og fórnum höndum í spurn yfir illskunni eða aðstæðunum sem þarna búa að baki.
Það virðist vera einhvers konar hömluleysi í samfélaginu þarna sem leiðir til þess að menn skirrast ekki við að myrða samborgara sína, jafnvel barnunga unglinga, með þessum hryllilega hætti og af svona tilefni eins og lýst er í viðtengdri frétt.
Í þessu umrædda landi virðist þó íhaldssamt karlaveldið halda samfélaginu föstum tökum í krafti trúarlegrar túlkunar og hefða og sérstaklega konur eiga þar verulega undir högg að sækja, eðli málsins samkvæmt, einnig unglingsstúlkur eins og í þessu tilviki.
Sjálfsagt spilar menningarinnræting að stofni til lykilhlutverk almennt séð, en spurning er hvort þetta atvik snúist um hefndarmorð af trúarlegum toga eða hreina siðblindu. Hins vegar fara gerendurnir hér þvert gegn Gullnu reglunni sem þó er einn af hornsteinum íslam eins og kristni.
Beinast böndin þá ekki jafnframt að óprúttnum trúaleiðtogum sem innræta öfgafullar og jafnvel rangar túlkanir sínar með trúarsetningum sínum meðal þegna samfélagsins? Trúarsetningum sem eiga sér ekki stoð í helgiritum sem sögð eru liggja til grundvallar viðkomandi trúarbrögðum.
![]() |
14 ára stúlka afhöfðuð í Afganistan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.11.2012 | 14:29
Alþingismenn bregðast við í orði - En á borði?
Svo er að sjá að alþingismenn, a.m.k. nokkrir hjartagóðir og vel hugsandi, bregðist hér í orði kveðnu við hjartnæmum og sláandi lýsingum af kjörum og úthaldi hjúkrunarfræðinga á íslenskum sjúkrahúsum sem myndir hafa verið dregnar upp af í fréttum.
Vonandi ná góð viðbrögð alþingismanna líka inn á jólaborð langþreyttra hjúkrunarfræðinga.
![]() |
Laun hjúkrunarfræðinga rædd á þingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.11.2012 | 15:43
Hvaða úrlausn fengju þeir?
Það fólk sem hefur sjálft þurft á að halda þjónustu og líknandi þjónustu starfsfólks á sjúkrahúsum landsins, og þeir sem heimsótt hafa sjúklinga þar, gerir sér grein fyrir hinu mikilvæga og fórnfúsa starfi starfsfólksins þar, ekki síst hjúkrunarfræðinga.
Þeim er rétt lifandi lýst í orðum Hörpu Þallar Gísladóttur í meðfylgjandi fréttapistli.
Verst er að ráðamenn og aðrir sem véla um kaup og kjör hjúkrunarfræðinga virðast ekki gera sér grein fyrir þessu og/eða hafa "syndgað upp á náð" starfsfólksins til þessa í þeirri von að það starfi þrátt fyrir það áfram á hugsjónarlegum forsendum að hálfu eða miklu leyti.
Svo virðist sem alþingismenn og ráðherra heilbrigðis- og velferðarmála þurfi að leggjast veikir inn á sjúkrahús í a.m.k. nokkra daga til að horfast í augu við raunveruleikann og gera sér grein fyrir málinu.
Hvað myndi gerast ef ráðherra sjúkrahússmála fengi sjúkur og ósjálfbjarga þau svör í sjúkrarúmi sínu með vökvaflösku tengda við handlegg sinn, í ys og þys á göngum spítalans, að hann þyrfti að bíða í daga eða vikur eftir æskilegri og réttri meðferð, eða verða fluttur veikur til útlanda, vegna þess að viðeigandi tæki eru biluð eða ekki til eða starfsfólk ekki til staðar til að framkvæma tiltekna aðgerð o.s.frv.?
Eða, ef loka þyrfti deildum vegna skorts á hjúkrunarfræðingum?
Hvað ef ráðherra sjúkrahússmála þyrfti að fara erlendis til læknismeðferðar vegna manneklu á LSH? Að ekki sé minnst á aðra sjúklinga! Hvaða úrlausn fengju þeir?
![]() |
Ekki hægt að útskýra allt með kreppu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 23.11.2012 kl. 10:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.11.2012 | 16:51
Vísir í Undralandi
Hinum vísu í þessu Undralandi virðist fyrirmunað að skilja eða gegna því að vaxtahækkanir hækka kostnað fyrirtækja og einstaklinga og kynda þar með undir verðbólgunni í stað þess að draga úr henni. Vaxtahækkunin er einn kostnaðaraukinn til viðbótar við aðrar kostnaðarhækkanir sem áhrif hafa á neysluvöruvísitöluna til hækkunar, sem síðan leiðir til enn meiri hækkunar á lánum, afborgunum og vaxtagreiðslum o.s.frv.
Þannig hefur virkni þessara þátta verið hjá Íslendingum sem búa við neysluvöruverðstengda verðtryggingu.
Þetta er hringavitlaus vítahringur sem samt er endurtekinn sí og æ með sömu hringlandi óviðeigandi rökunum.
![]() |
Stýrivextir hækka um 0,25 prósentur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 23.11.2012 kl. 11:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
12.11.2012 | 15:25
Það hefði hvinið í Dönum
Ég sé fyrir mér vandlætingarsama vinnufélagana í Danmörku taka bakföll af hneykslan og heilagri reiði ef þeir samfara fréttum um hækkun verðvísitölu hefðu þurft að kyngja því að skuldir þeirra hefðu hækkað samsvarandi af þeim sökum. Skiptir þá engu máli þótt ársverðbólgan mælist "aðeins" 2,3%, hvað þá heldur upp í tveggja stafa tölu.
Hérlendis var fólk orðið all-dofið gagnvart þeim íslenska veruleika og áþján að neytendalán eru tengd neysluverðsvísitölu þegar verðbólgan tók stökk upp á við snemma árs 2008 og með vaxandi hraða við bankahrunið um haustið og gerði leiftursnögga árás - eins og þungvopnuð herþota í stungu sinni að árásarmarkinu - beint á skuldum hlaðið fólkið og fyrirtæki, almenning, varnarlauan á jörðu niðri.
SKEMMST er frá því að segja að verðbólguþotan hitti gjörsamlega eins og ávallt með beinskeyttum og sértækum og skuldarasæknum verðbólguskotum sínum beint í verðtryggð mörk sín, verðtryggð lán, og tókst að tvístra fórnarlömbunum í allar áttir og skilja mörg heimili og fyrirtæki eftir í rústum. Afleiðingarnar koma æ betur í ljós eftir því sem árásarreykurinn stígur upp frá rústunum. Eldar loga þó enn og, það sem verra er, fara vaxandi en ekki minnkandi.
Því miður reynist skaðinn mun víðtækari en bjartsýnustu ríkisstjórnarmenn óraði fyrir, enda virðast röng greiningargleraugu hafa villt þeim sýn.
Ekki var gripið til ráðstafana sem blöstu við í síðasta lagi á fyrsta bankahrunsdeginum, þ.e. að frysta verðtryggingarvísitölur sökum forsendubrestsins.
Þess í stað voru þær látnar óáreittar og leyft að leika lausum hala í höfuðstól verðtryggðra lána í samræmi við gengishrun og stýrivaxtahækkanir og aðrar kostnaðarhækkanir og álögur innanlands.
Með þessu glórulausa aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar og plástursaðgerðum hennar, sem aðeins lengja í hengingaról illa staddra skuldara, hefur eyðingarbál verðtryggingar lána rústað fjárhag tugþúsunda skuldara, heimila og fyrirtækja. Og áfram er haldið á þeirri feigðarbraut meðan siðapostular verðtryggingar hrópa af fjárhaugum sínum að siðlaust væri að afnema verðtryggingu lána þar sem þá myndi sparifé brenna upp á verðbólgubálinu. Engu er líkara en að þeim sé sama þótt verðtryggingin sé á hinn bóginn að ræna viðkomandi lántakendur með hliðstæðum hætti öllum eignum þeirra, og meira en það, þar sem þeir sitja þess utan uppi með himinháar skuldir reiknaðra verðbóta þegar eiginfé þeirra er upp urið með engar eignir á móti nema von um framtíðarvinnutekjur.
Ljóst ætti að vera að hér þarf að fara bil beggja þannig að sæmileg sátt náist um þessi mál í landinu. Báðir aðilar, bæði lánveitendur og lántakar, verða að bera sameiginlega áhættuna af verðþróun á lánstíma lána. Það verður enginn friður annars.
Undanfarnir áratugir allt frá tíma óverðtryggðra lána og langvarandi verðbólgu upp á tugi prósenta á ári samhliða verðtryggðum lánum og óverðtryggðum launum hafa opinberað hina tvo eyðandi öfga tengt verðbólgu: Bruna sparifjár sparifjáreigenda fyrir tíma verðtryggingar lána annars vegar og eignabruna skuldara eftir tilkomu verðtryggðra lána hins vegar.
Löngu tímabært er að þessu stríði lánveitenda og lántakenda linni með sátt og nauðsynlegri leiðréttingu nú þegar nægilega langt aftur í tímann. Núverandi ríkisstjórn gerir sér ekki grein fyrir þessum vanda, eða aðhefst a.m.k. ekki með viðhlýtandi hætti.
Samstaða með báðum aðilum þarf að koma til.
Yfirvofandi endurnýjuð hrunstjórn S-S (Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar) er ekki líkleg til að leysa málið farsællega með ásættanlegri lausn fyrir báða aðila. Hvorugur þessara flokka gerði það í þeim ríkisstjórnum sem starfað hafa í kjölfar bankahrunsins.
Eða, er ástæða til að ætla að þeir muni hafa breytt um grundvallaráherslur í þessum málum næsta vor og taki þá sniðgenginn hluta kjósenda, skuldum þjakaðan almenning, einnig í hóp skjólstæðinga sinna?
![]() |
Dregur úr verðbólgu í Danmörku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.11.2012 | 17:58
Hundalógík stjórnmálanna
Þessi frétt af hneykslan og fordæmingu ungra kjósenda í Bandaríkjunum á því hversu núverandi forseta hafi orðið lítið ágengt við að efna kosningaloforð sín frá því fyrir fjórum árum vekur upp spurningu um hvort þeir hafi virkilega ekki velt því fyrir sér hvers vegna svo sé, ef rétt er.
Hafa þeir ekki fylgst með tillögum og viðleitni forsetans til að koma á umbótum í t.d. heilbrigðiskerfinu og sporna við eyðileggjandi áhrifum og afleiðingum hinnar tiltölulega óheftu frjálshyggjustefnu sem hefur ríkt á fjármálasviði fyrir tilstilli andstæðinga forsetans, repúblikana og repúblikanaflokksins?
Ef unga fólkið myndi nú hugleiða málið fordómalaust og sjálfstætt þá ætti það að komast að því hvor forsetaframbjóðandinn er að vinna fyrst og fremst fyrir almenning. Þá ætti að renna upp ljós fyrir ungu kjósendunum hvað hefur staðið í veginum fyrir fullum árangri núverandi forseta við að efna kosningaloforð sín.
Þessi frétt bendir til þess að kjósendur eins og umrædd Colleen Weston sleppi því að ómaka sig á slíkum hugleiðingum og ætli sér því í staðinn og einfaldlega að kjósa þá aðila sem hafa í reynd komið í veg fyrir að forsetinn gæti staðið við kosningaloforðin. Halda mætti að svona "hugsuðir" telji að andstæðingar forsetans muni fremur en hann koma gömlu kosningaloforðum hans í framkvæmd! - Hvílíkur hugsanagangur! En, þetta er ekki sér-bandarískt fyrirbæri.
Þetta er hliðstætt rökleiðslu þeirra íslensku kjósenda sem hyggjast kjósa gömlu hrunflokkana sína aftur í næstu kosningum í von um það að þeir hafi breytt eðli sínu!
Þessir kjósendur virðast halda að með því að gera það sama komi önnur útkoma en áður! Var það ekki slíkur hugsunarháttur sem Albert Einstein kallaði vitfirringu eða brjálæði?
![]() |
Obama hefur misst fylgi ungs fólks |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)