18.8.2014 | 14:55
Þjóðkirkjuútvarp
Eitt af svörum þjóðkirkjunnar, væntanlega með biskup í broddi fylkingar, við útspili Ríkisútvarpsins um niðurfellingu morgun- og kvöldorða úr ranni þjóðkirkjunnar hlýtur að vera að setja á laggirnar eigin útvarpsstöð.
Furðu sætir að það skuli ekki hafa verið gert fyrir löngu síðan.
Ýmsum sértrúarsöfnuðum í landinu, og það jafnvel harla smáum, hefur verið látinn sá vettvangur eftir hingað til. Almenningur gæti haldið að það sem þar er borið á borð sé jafnframt túlkun og áherslur þjóðkirkjunnar í trúarefnum, sem er náttúrulega ekki tilfellið.
Er ekki mál til komið að þjóðkirkjan láti líka í sér heyra á þeim vettvangi?
Þjóðin vill hafa Þjóðkirkjuna í friði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.8.2014 | 19:52
Geta sumir fréttamenn ekki lesið sér til skilnings?
Það er sýnist mér orðin áleitin og grafalvarleg spurning hvort sumir fréttamenn geti ekki lesið sér til skilnings; Að það sé ekki bara bundið við 15 ára aldur grunnskóladrengja. Maður fer að hafa áhyggjur út af þessu; Ég verð nú að segja það, í ljósi meðtengdrar fréttar og fréttaskýringa.
Þarf að auka yndislestur og/eða taka upp lestrarkennslu í námi fjölmiðlafræðinga?
Fullyrti ekki að hegðun fólks breyttist | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.8.2014 | 14:39
"Hlustun afar lítil." - ?
Dagskrárstjóri Ríkisútvarpsins réttlætir niðurfellingu rótgróinna daglegra dagskrárliða á Rás 1 um stutt innskot úr ranni Þjóðkirkjunnar um andleg efni með ummælum sínum: "Hlustun á þá hefur verið afar lítil", sbr. frétt í Morgunblaðinu 14.8.2014 bls. 2. Um er að ræða þættina "Orð kvöldsins" og "Morgunbæn".
Ekki kemur fram á hvaða könnunum sú fullyrðing er byggð og hvort þær kannanir hafi náð til allra aldurshópa, þ.e. einnig hóps "aldraðra" sem stundum eru ekki með í skoðanakönnunum. Nauðsynlegt er að fá það upplýst áður en yfirlýsingar dagskrárstjórans eru kokgleyptar hráar, ekki síst í ljósi þess að líklega er það einmitt sá hópur sem mest hefur hlustað á umrædda útvarpsþætti.
Hitt er annað að vel mætti ræða um breytta nálgun og efnistök í þáttunum þótt þeir hafi fyrst og fremst skírskotað til kristinnar hefðar með því tungutaki og orðfæri sem þar tíðkast.
Vilja hafa hin kristnu gildi í heiðri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.7.2014 | 21:48
Sigurlega mælt hjá Sigrúnu
Vel mælt og góð svör hjá Sigrúnu Magnúsdóttur um brotthlaup meintra framsóknarmanna, sem fóru á harðahlaupum frá ábyrgri samfélagsumræðu.
Ég skil ekki mennina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.7.2014 | 17:13
Á harðahlaupum frá ábyrgri samfélagsumræðu
Segja mætti að sumir, sem sögðust aðhyllast stefnu Framsóknarflokksins og voru skráðir meðlimir flokksins, hafi villst af leið og látið afvegaleiðast af óprúttnum málatilbúnaði andstæðinga flokksins um hafa vænt ýmsa með forkastanlegum hætti um rasisma að ósekju.
Úrsagnir nokkurra þvermóðskufullra félaga úr Framsóknarflokknum, sem er með skýra og manngildisvæna stefnu í mannréttindamálum eins og sjá má á stefnuskrá flokksins og sem áréttuð var á nýafstöðnum miðstjórnarfundi flokksins, eru dæmi um þá öfgafullu þöggun og útúrsnúandi sleggjudóma sem margir hérlendis vilja viðhafa í staðinn fyrir hreinskiptar og uppbyggjandi umræður um innflytjendamálefni í íslensku samfélagi.
Þetta virðast margir gera meðal annars undir yfirskini umburðarlyndis, misskilins, sem í raun jaðrar við helbert dómgreindarleysi. Þeir virðast leitast við að upphefja sjálfa sig sem hreintrúaða mannréttindasinna, en með tilvísun til trúfrelsis umfaðma þeir meðal annars hugsanlega innflytjendur sem aðhyllast hugmyndakerfi undir nafni trúarbragða sem í reynd eru með ramm-pólitíska stefnuskrá, að hluta til mannfjandsamleg eigin trúarlegu lög sem byggja á helgiritum aftan úr grárri forneskju sem urðu til í samfélögum sem voru gjörólík lýðræðislegum samfélögum nútímans; Enda eru sum þessara trúarlaga þeirra í hrárri andstöðu við núgildandi íslensk lög að því er nútímaleg mannréttindi varðar.
Þetta gera þessir að eigin dómi umburðarlyndu menn með til þess gerðum málatilbúnaði, á harðahlaupum á flótta frá pólitískt ábyrgri orðræðu um innflytjendamálefni, í stað þess að taka þátt í umræðu um hvernig samfélag við viljum byggja upp á Íslandi og hvernig samfélag við viljum forðast.
Maður spyr sig hvort þeir ætli sér að ganga svo langt að taka undir hvaða menningarhefðir innflytjenda sem er með opnum örmum í nafni umburðarlyndis og opins fjölmenningarsamfélags jafnvel þótt þær gangi augljóslega í berhögg við íslensk lög og gildi og gegn rótgrónum íslenskum menningarhefðum; Og jafnvel þótt dæmin í nágrannalöndum okkar um slæmt ástand innflytjendamála þar sýni víti afskiptaleysis, sem ber að varast og forðast meðan hægt er.
Segja mætti að þetta sé óskiljanlegur undirlægjuháttur og lítilsvirðing við eigin menningu og hefðir, svo ekki sé meira sagt.
Segir sig úr Framsóknarflokknum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.7.2014 | 23:47
Túrisminn í stjórnkerfinu
Svo virðist sem heildarsýn skorti varðandi túrismann á Íslandi, tilfinnanlega.
Ríkisstjórnin þyrfti að íhuga vandlega hvort stefnumótun og stjórnun ferðamála, "túrisma", á ensku "tourism", sé rétt staðsett í stjórnkerfinu, allt frá ráðuneytum og niður úr.
Túrismi er afar viðfeðmur málaflokkur. Auk "ferðamála" spannar hann einnig m.a. náttúruvernd, atvinnumál, samgöngumál, byggðamál, landbúnaðarmál, sjávarútvegsmál, iðnaðarmál, orkumál, menntamál, ríkisfjármál, gjaldeyrismál og utanríkismál - nánast allar greinar efnahagskerfisins.
Þess vegna vaknar sú spurning hvort skipulag og stjórnun á málefnum er varða túrismann í heild sinni sé á réttum stað í stjórnkerfinu í þessu ljósi, þ.e. hjá iðnaðarráðuneytinu einu saman meðal ráðuneyta. Halda má því fram að þarna vanti tilfinnanlega stefnumótun og samnefnara á hæsta stigi framkvæmdavaldsins - og það ekki seinna en strax, og þó fyrr hefði verið.
Ísland er að verða útjaskað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.7.2014 | 14:15
Enn við sama vaxta-heygarðshornið
Hvort haldið þið að ÁFORM Peningastefnunefndar Seðlabankans um vaxtahækkanir og undirtakandi athugasemdir glaðhlakkalegs seðlabankastjóra í því sambandi auki eða minnki verðbólguVÆNTINGAR fjárfesta og fjármálakerfisfólks?
Hvort haldið þið að þær væntingar leiði til vaxandi eða minnkandi verðbólgu?
Hvernig haldið þið að þessu fólki Seðlabankans gangi að hamla gegn verðbólgu með þessu móti, eins og það segist hafa að markmiði, þ.e. með aðvörunum og hótunum um hækkun stýrivaxta?!!!
Hér bendir seðlabankastjóri m.a. á aukningu í einkaneyslu sem rök fyrir vaxtahækkun en lætur hjá líða að greina hvaðan þessu aukning er komin. Hversu stóran þátt ætli erlendir ferðamenn eigi í einkaneyslunni á Íslandi um þessar mundir og undanfarið? Það gefur augaleið að hækkun stýrivaxta hefur ekki bein eftirspurnarhamlandi áhrif á þann hóp. Vaxtahækkanir leiða hins vegar fyrst og fremst og umsvifalaust til hækkunar á eftirstöðvum verðtryggðra lána landsmanna og er þó ekki á það bætandi.
Seðlabankastjóri lætur að því liggja að það sé vaxtastefnu Seðlabankans að þakka hve verðbólgan hefur hjaðnað undanfarið. Það er hárrétt að því leyti að bankinn hefur ekki hækkað stýrivexti sína og þar með vaxtastigið í landinu undanfarið. Verðbólgan mun fara hækkandi aftur um leið og bankinn hækkar stýrivextina. Þeir eru orsakavaldur.
Hins vegar er önnur hlið á þessu máli sem er gengisskráningin á krónunni. Hún er mikill áhrifavaldur um verðbólgustigið í landinu, eðli málsins samkvæmt. Er einhver sem heldur að gengi hennar sé "rétt", í ljósi allt annars og lægra gengis hennar á öðrum mörkuðum en í bankakerfinu hérlendis?
Segir peningastefnuna skila árangri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.4.2014 | 08:41
Eru Fjármálamarkaðir "Tortímandi" trúarbrögð nútímans?
Dr. Mark C. Taylor, forseti trúarbragðafræðideildar Columbia háskóla í New York, hélt athyglisverðan fyrirlestur á málþingi með yfirskriftinni "Fjármálamarkaður: Trúarbrögð nútímans?" þ. 16. maí 2013 í boði Guðfræðistofnunar HÍ og Stofnunar dr. Sigurbjörns Einarssonar.
Hann tengist mjög því efni sem væntanlega verður til umfjöllunar hjá Jim McTague, fréttastjóra hjá bandaríska fjármálablaðinu Barron's á fyrirlestri hans í dag, en hann bendir á að um helmingur viðskipta í kauphöllum í Bandaríkjunum fari fram í gegnum tölvukerfi og forrit sem taka "sjálfstæðar ákvarðanir" á augabragði. - Það er að sjálfsögðu samkvæmt þeim reiknireglum sem forritaðar eru af fjármálafyrirtækjum verðbréfakaupmanna.
Dr. Mark C. Taylor hefur líkt þessu ástandi við þær vélrænu aðstæður sem leiddu ófremdarástand yfir mannkyn í sögu kvikmyndarinnar The Terminator og sem þar eru gagnrýndar.
Taylor heldur því fram að ávallt séu tengsl á milli trúarbragða og efnahagsmála, eða hagrænna atriða. Með siðbreytingu Lúthers hafi trúarbrögðin verið einkavædd, eða færð til einstaklingsins. Taylor benti á þá söguskoðun að auðsöfnun hafi komið til í kalvínisma, þar sem trúuðum var uppálagt að vinna og spara. Þarna séu rætur hins fjármálalega kapitalisma eða fjármálamarkaða sem komið hafa í ljós undanfarna áratugi.
Nú séu tæknin og hraðinn orðinn slík að viðskipti með hlutabréf fyrirtækja og verðpappíra eru framkvæmd á örskotshraða með reiknikerfum í tölvum; Það minni á kvikmyndina um Tortímandann (The Terminator). Þetta hafi átt sinn þátt í hruni fjármálamarkaða 2008.
Á grunni greiningar Taylors spyr maður sig hvort og þá hvað trúarbrögð geti gert við þessu ófremdarástandi í samtímanum, í ljósi þess að visst upphaf þess megi rekja til þeirra sjálfra, nánar tiltekið siðbreytingarinnar (Lúthers og Kalvíns) á 16. öld!
Nánar tiltekið komu eftirfarandi skoðanir Taylors fram í fyrirlestrinum, en inntaki hans var lýst þannig í tilkynningu frá aðstandendum fyrir málþingið:
In the past several decades a new form of capitalism has emerged: finance capitalism. This has been the result of a combination of factors ranging from technological innovation to changes in regulatory policies. The critical variable is speed. Today's high-speed, high-frequency ttrading has created a system that has already brought devastation and now threatens to collapse.
While apparently hyper-modern, financial capitalism has its roots in modernity. Speed is, in fact, a modern invention. But modernity, in turn, was initiated by Luther. From Wittenberg to Reykjavik - an unlikely but timely trajectory.
Forrit ákveða um helming viðskipta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.3.2014 | 12:35
Trúarrit og túlkun
Það mætti halda að sumt fólk og trúarsamtök haldi að það sem ritað er í helgirit fornra trúarbragða byggi á nútímalegum mynda- og hljóðupptökum frá þeim sögusviðum og þeim tíma sem þar er lýst. Slík er bókstafshyggjan. Þetta kemur vel fram þegar í hlut eiga kvikmyndir sem byggja að einhverju leyti á frásögnum í trúarritum.
Margir virðast ekki átta sig á því að sögur og lýsingar í helgiritum, sem og trúarlegar kennisetningar og túlkun túlkenda þeirra, eru túlkun manna; Allt frá ævafornum munnlegum geymdum, ritun þeirra og annars efnis um síðir í helgirit til forna af mönnum þar sem efnið var jafnframt valið af aðilum sem í dag myndu kallast ritstjórar, og fram til túlkunar þeirra þaðan í frá og í samtímanum.
Í stað þess að einbeita sér að því að greina til dæmis (sígildan) siðferðislegan boðskap sem verið er að leitast við að tjá í hinum forna texta með sögum og lýsingum og sviðsetningum persóna í tilteknum aðstæðum eins og þá ríktu, þá heftir bókstafshyggjufólk sig við orðin og sögurnar sjálfar samkvæmt orðanna hljóðan og túlkar textann bókstaflega og tekur í þeirri túlkun sinni meðal annars ekki tilhlýðilegt tillit til þess að aðstæður og samfélag í dag eru ekki eins og það var til forna á ritunartíma sagnanna. Þar með er einnig horft fram hjá því að greina í hvaða tilgangi viðkomandi saga kann að hafa verið rituð eða höfð með í ritunum. Upphugsaðar sögur og lýsingar sem ætlaðar voru til að lýsa æskilegri og friðvænlegri breytni fólks í mannlegu samfélagi við tilteknar aðstæður og/eða byggja ef til vill á lauslegum heimildum eru þá og teknar bókstaflega eins og viðkomandi persónur hafi verið til og viðkomandi atburðir gerst nákvæmlega þannig í raunveruleikanum; Jafnvel lýsingar á hugrenningum og samtölum persónanna orðrétt!
Forfeðrasögur Hebrea/Ísraelsmanna hentuðu öðrum þræði vel til skilgreiningar á sjálfskilningi þeirra til þess að halda ættflokkum og þjóðarbrotum þeirra saman og viðhalda einingu og til aðgreiningar frá öðrum. Sagan af Nóa og arkarsmíði hans og flóðinu í hebresku biblíunni (Fyrstu Mósebók) er dæmi um þetta. Fræðimenn telja ekki ólíklegt að hún hafi dregið dám af enn öðrum og fornari sögnum á sínum tíma, þ.e. babýlonsku sköpunarmýtunni Enuma Elish, en leirtöflur með henni hafa verið tímasettar til um 1100 f.Kr og eru taldar vera afrit af enn eldri töflum. -
Trúarbrögð hafa skipt miklu máli fyrir félagslega mótun í samfélögum manna, en trúarbrögð ei ru öðrum þræði túlkun á tilvistarlegum aðstæðum manna í heiminum, sem og túlkun trúarstofnana, trúarleiðtoga og annarra á helgiritum sínum.
Kvikmyndir sem byggja á túlkunum trúarrita eru sömuleiðis túlkun á þeim, eðli málsins samkvæmt.
Noah bönnuð víða um heim | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.3.2014 | 00:56
Afvegaleidd umræða
Stjórnarandstaðan virðist leitast við að umsnúa orðræðunni frá kostum og miklu fleiri göllum við inngöngu Íslands í ESB yfir í það hvort almenningur, lýður lands, eigi að ráða að stofni til í lýðveldi. Það er ekki spurningin.
Umræða hefur að miklu leyti horfið frá umfjöllun um skýrslu Hagfræðistofnunar um stöðu aðlögunarferlisins yfir í eitthvað allt annað. Um leið er verið að tefja þingið frá umfjöllun um brýn efnahagsleg mál hér og nú sem eru mikilvæg fyir almenning í landinu.
Fólk hefur látið afvegaleiðast gegn eigin hagsmunum sökum óprúttinna forkólfa og talsmanna stjórnarandstöðunnar, ekki síst það sem hefur látið blekkjast af mótmælendahirð stjórnarandstöðuflokkanna til að mæta með þeim á Austurvöll til "að mótmæla" í nýliðinni viku. Margir virtust vera að mótmæla einhverju allt öðru heldur en Já- eða Nei-ESB.
Vonandi fer þessari herleiðingu ESB-umræðunnar að linna og þingmenn og fjölmiðlar að ræða um inngönguumsókn Samfylkingar og VG í ESB, kosti hennar og galla fyrir hagsmuni Íslands.
Skýrslan rædd á nefndarfundi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)