8.2.2015 | 13:51
Lítil skref
Að mínu mati er lagið "Lítil skref" áberandi flottasta lagið, meðal annarra flottra og góðra laga í riðlinum í gærkveldi, 7.2.2015; Gott "grúv", hlý og glaðleg og blæbrigðagóð melódía og góður söngur.
Söngurinn og sviðsframkoman eiga bara eftir að styrkjast og magnast með þrotlausum æfingum fram að lokakeppninni í Eurovision ytra.
Já, lagið Lítil skref er stórt skref í áttina að hlutdeild Íslendinga í lokatónleikum EuroVision í Austurríki í vor.
4 af 6 lögum áfram (MYNDIR) | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Sjónvarp, Tónlist | Breytt s.d. kl. 13:53 | Facebook
Athugasemdir
Já, ég verð að bæta því við að mér finnst lögin í heild sem voru í seinni riðlinum í gærkveldi, 7.2.2015, óvenjulega áheyrileg öll upp til hópa. Mér finnst þessi riðill marka þáttaskil í íslenskum Eurovision-forkeppnum að því leyti að flest lögin eru af dálítið annarri "gerð", áferð eða "kaliber" heldur en "hefðbundnari" lög sem hafa verið í forkeppnum undanfarin ár.
Kristinn Snævar Jónsson, 8.2.2015 kl. 14:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.