3.1.2012 | 19:42
Hver er tilgangurinn með eftirliti Matvælastofnunar?
Þau atriði sem koma fram í fréttinni sem rök Matvælastofnunar fyrir því að stöðva ekki dreifingu áburðar sem talinn er skaðlegur heilsu manna og jafnvel krabbameinsvaldandi eru þvílík steypa að furðu sætir.
Rökleysan í útskýringum MAST fyrir því að stöðva ekki dreifingu áburðarins er yfirþyrmandi:
Svona mengun í áburði "hefði ekki gerst áður" hjá viðkomandi innflytjanda, og að í kjölfar gossins í Grímsvötnum "hefði ekki þótt ábætandi að valda frekari erfiðleikum og hugsanlegum áburðarskorti"!
Felst eftirlit MAST í einhverju öðru en að verja heilsu og hagsmuni neytenda, eða á sjónvarpsfrétt RÚV í kvöld 3.1.2012 um krabbameinsvaldandi efni í áburðinum ekki við rök að styðjast?
MAST upplýsti ekki um mengun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Matur og drykkur, Umhverfismál | Facebook
Athugasemdir
þeir virða meir admælarétt Skeljungs =Sjell,heldur en heilsu Landsmanna.
Vilhjálmur Stefánsson, 3.1.2012 kl. 23:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.