29.8.2009 | 15:06
.. og smáviðbætur um vaxtamál:
- Sjá til að vextir verði lækkaðir strax, í krafti skynsamlegra raka sem eiga við raunveruleikann hér á landi núna, í stað landeyðandi áhrifa hávaxtastefnunnar sem rekin hefur verið á rústum kolrangra forsendna sem ekki eiga við hér og nú; heldur aðeins í staðleysu kennslubókardæma hávaxtahöfðingjanna í húsinu myrka við sjóinn.
Tilgangur aðgerða: Til að koma íslenskum heimilum og fyrirtækjum til hjálpar og bjargar, sem nú róa lífróður við að halda sér á floti, enda samræmist það vel stefnu flokksins (eða hvað?!!).
Greinargerð, og til upprifjunar: Hér á landi var vaxtatig fært niður í einni svipan með skynsamlegri ákvörðun um þjóðarsátt, er vextir voru með "einu pennastriki" færðir niður í 5% í ráðherratíð Sighvats Björgvinssonar (beðist er velvirðingar á því að svona nafn skuli bloggað inn í helg vé flokksfundar Vinstri grænna). Verðbólgan fylgdi niður á við í kjölfarið. Þar hrundi það sem hrynja skyldi!
Rifjið upp það mál og góðar afleiðingar þess fyrir almenning og kaupmátt hans, atvinnuþróun og hagvöxt og gróandi þjóðlíf.
Fjármagnstekjur skattlagðar eins og laun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.