9.8.2009 | 19:21
Allt ber að sama brunni
Já, allt ber að sama brunni, en sá brunnur heitir auðlindir Íslands!
Alltaf er að koma betur í ljós hversu verðmætar auðlindir Íslands eru og er verðmæti þeirra sífellt að aukast. Sú verðmætisaukning er í hlutfalli við vaxandi skort á samsvarandi auðlindum annars staðar í heiminum og einnig í samræmi við sífellt fleiri upplýsingar um þverrandi auðlindir annars staðar en hér.
Þetta hef ég fjallað um í "jómfrúarpistli" mínum hér í blogginu um lífslindir og lífsstíl. Þar eru þessi mál sett í stærra samhengi grundvallarlega séð og varað við því að hleypa öðrum þjóðum eða ríkjabandalögum í þessar auðlindir af vangá og án þess að þær greiði tilhlýðilegt gjald fyrir. Það gjald á með réttu að vera hátt og það fer sífellt hækkandi. Umrædd frétt um þverrandi olíulindir í Norðursjó er til vitnis um það og vekur tímabæra athygli á því.
Það gjald eiga aðrar þjóðir, sem áhuga munu hafa á að kaupa auðlindaafurðir okkar, að greiða til þjóðarinnar allrar. Hvorki erlendar þjóðir né einkafyrirtæki eiga að komast í aðstöðu til að hlunnfara íslenskan almenning um arðinn af auðlindum Íslands.
Olían senn á þrotum í Norðursjó | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.