28.5.2009 | 19:34
Gervilimir eða ektalimir í Palestínu
Það er óumræðilega gleðilegt að hið stríðshrjáða og limlesta fólk, sem fréttir berast nú af frá Palestínu, skuli geta séð fram á nýtt líf með gervilimum frá Össuri, eftir að vera búið að missa t.d. fætur sína í árásum nágranna sinna. Það er hins vegar óendanlega miklu æskilegra að fólkið hefði fengið, og fái, að halda fótum sínum og holdi og híbýlum óáreitt og laust við stríð. - Þetta er dapurlega öfugsnúið!
Þessu þarf að linna! Viljum við ekki frið? Vill fólkið ekki frið? Hver vill ekki frið?
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.