25.5.2009 | 18:04
Viðskiptabann á Ísland eða staðgreiðsla? Hvað þá?
Einmitt, þetta myndi ég vilja kveðið hafa, Lilja! - Og er þá ekki einmitt kominn tími til að draga upp mynd af því hvað verður líklega upp á teningnum í þeirri stöðu? Munu einhverjar núverandi viðskiptaþjóðir Íslands þá setja "viðskiptabann" á landið, eða krefjast staðgreiðslu fyrir alla vörusölu til landsins? Hvernig snúum við okkur þá í því? Hvaða lifnaðarhættir og lífsstíll blasa þá við landsmönnum? Er það í raun verri afleiðingar en landeyðingarstefnan í formi hárra vaxta samkvæmt tilmælum erlendis frá? - Þessa kosti verður að útskýra fyrir þjóðinni; ef ekki af stjórnmálamönnum, þá fyrir þá og fyrir þeim.
Það er eins gott að við höfum gömlu matvælaframleiðsluna okkar enn, bæði í landbúnaði og sjávarútvegi! Það kemur sér vel, og þægilegt er til þess að vita, að ekki skuli vera búið að útrýma landbúnaðinum okkar með "ódýrum" matvörum erlendis frá! Við værum í öllu verri stöðu og samningsaðstöðu ef svo hefði verið; umsátursástandi! Menn hugleiði það! Það er ef til vill kominn tími til að henda út "síðasta kjötlærinu" (með AGS-stimplinum) eins og þeir gerðu sem til varnar voru í Borgarvirki forðum daga samkvæmt sögunni til sannindamerkis um það að við höfum nóg fyrir okkur og látum ekki kúga okkur að ósekju þegjandi og hljóðalaust.
Ætti að afþakka ráðgjöf AGS | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það er nú þegar staðgreiðsla á stórum hluta vörusölu til landsins
Jón Aðalsteinn Jónsson, 25.5.2009 kl. 18:24
Sú leið að losa íslendinga við AGS og láta reyna á viðskiptabann eða staðgreiðslu gæti verið betri leið til lengri tíma litið.
Auk þess sem það eru meiri líkur á því að stjórnvöld gætu sameinað þjóðina í því að vinna sig út úr vandanum. Að þvi gefnu að stjórnvöld sýndu leiðtogahæfileika og þjóðinni hollustu.
Magnús Sigurðsson, 28.5.2009 kl. 08:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.