12.7.2011 | 12:21
Lærdómur seðlabankamanna Íslands
Furðulegar hugmyndir um að hækka stýrivexti, sem seðlabankastjóri viðrar nú í fréttum, gefa því miður vísbendingar um að hann og/eða stjórn Seðlabankans hafi ekkert lært af afleiðingum hávaxtastefnunnar sem komið var á af þeim fyrir tilstilli Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) í kjölfar bankahrunsins 2008.
Ennfremur að fræðingar þar á bæ hafi ekki einu sinni skilið hvernig vextir virka á rekstur fyrirtækja og heimila og neytendur.
Að minnsta kosti fara þeir ekki eftir hvorki grundvallar hagfræðikenningum um mismunandi viðbrögð við mismunandi tegundum verðbólgu, eins og hagfræðingur Arion banka og Gylfi Zoëga hagfræðiprófessor benda á og útskýra, né heldur heilbrigðu innsæi.
Það ætti að vera augljóst hverjum manni að hækkun vaxta nú, þegar mikill slaki er á efnahagskerfinu og atvinnuleysi mikið og fjárfestingar í lágmarki, myndi gera erfiðan róður fyrirtækja og heimila enn erfiðari og gera út af við enn fleiri. Ef það er stefna Seðlabankans þá eru þessar ógnandi yfirlýsingar seðlabankastjóra náttúrulega skiljanlegar.
Hækkun stýrivaxta við þessar aðstæður hefði hins vegar í sjálfu sér engin áhrif til að minnka verðbólguna, en kyndir þvert á móti undir meiri verðbólgu sem einn kostnaðaraukinn til viðbótar við aðrar kostnaðarhækkanir sem áhrif hafa á neysluvöruvísitöluna til hækkunar; Sem síðan leiðir til enn meiri hækkunar á lánum, afborgunum og vaxtagreiðslum.
Það sem skín í gegnum þessar yfirlýsinggar seðlabankastjóra er hins vegar uppeldislærdómur hans hjá AGS um umsýslu fjármagns til að efla hag fjármagnseigenda hinna meiri.
Hækkun stýrivaxta nú eflir fyrst og fremst þeirra hag, en er öllum skuldurum í óhag, bæði fyrirtækjum og heimilum landsins og þar með efnahagslífi landsins.
Þar sem gjaldeyrishöft eru í gildi eru það ekki gild rök að halda því fram að hækka þurfi vexti til að halda inneignum erlendra aðila kyrrum í íslenska bankakerfinu.
Seðlabankinn hækkaði samt stýrivexti í ofurhæðir (eftir að hafa áður hafið lækkunarferli í kjölfar hrunsins) samkvæmt tilmælum AGS þrátt fyrir gjaldeyrishöftin. Það gaf innistæðueigendunum vaxtatekjur sem sliguðum skuldurum var gert að borga í ofanálag við snögghækkaðar verðbætur lána sinna og stökkbreyttar skuldir.
Þessari viti firrtu hávaxtastefnu seðlabankamanna, lénsherra erlendra fjármálaafla, þessari aðför að skuldsettu efnahagslífi landsins, þarf að andæfa af krafti og hörku. Hvar eru talsmenn Íslendinga?
Stýrivaxtahækkanir nú gætu leitt til meiri verðbólgu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Stjórnmál og samfélag, Utanríkismál/alþjóðamál, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 14:02 | Facebook
Athugasemdir
Hver skilur Seðlabanka Íslands? Ég er búinn að vera benda á þetta í mörg ár - meira segja hér á Moggablogginu. Seðlabankinn gerir allt öfugt miðað við almennt viðurkenndar hagfræðikenningar.
Sumarliði Einar Daðason, 12.7.2011 kl. 12:53
Seðlabankinn innan Samspillingarinnar gengur útá að gefa út opinbera lygi til að keppa við "moggalygi"
Munurinn á "moggalygi" (eins og Jóhrannar erkisauður kallar það) og opinberri Samfylkingarlygi er að "moggalygi" byggir á sönnum atburðum en Samfylkingarlygi er hreinn skáldskapur.
Óskar Guðmundsson, 12.7.2011 kl. 13:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.