25.4.2011 | 02:31
Stormur í spábolla Veðurstofunnar
Þetta reyndist nú aðeins verða "smágustur" og ekkert líkt hvellinum um daginn sem Veðurstofan hótaði okkur veðurleysingjunum með sem í mesta sakleysi ætluðum að keyra niður Norðurárdalinn, fyrir Hafnarfjall og yfir Kjalarnes á Páskadag. Tókum við saman föggur okkar í skyndi um kvöldmatarleytið á laugardagskvöld þegar hin ógnþrungna spá Veðurstofunnar glumdi við og fórum þannig degi fyrr til Reykjavíkur en áformað var. Gusturinn rétt marði 30 m/sek samkvæmt mælinum við Hafnarfjall og rétt hnippti aðeins í bílinn þrotinn hinum ógurlegu kröftum. Hressileg rigning en enginn bíll á flugi. Hundurinn í skottinu geispaði hæðnislega út um opinn gluggann og lék við hvert sitt skott.
Hin ónákvæma frétt í Sjónvarpinu og á veðurkortinu á mbl.is um að hviður gætu farið í 40 m/sek "frá um 21 til 2 í nótt" reyndist því aðeins vera gustur á kortaborði Veðurstofunnar og hefði átt að hafa glugga lokaða þar á bæ. Ónákvæmnin í fréttaflutningnum fólst í því að ekki kom fram hvort "veðurofsinn" ætti að hefjast á þessu tímabili eða vara einungis á þessum umrædda tíma. Þess vegna dreif fólkið sig í bæinn strax og hægt var og var á seinni tímanum í 22 á laugardagskvöldið að gá til veðurs undir Hafnarfjalli á leiðinni heim úr páskafríi - fyrir páska!
Vonandi berast nákvæmari spár og fréttir af veðri í framtíðinni, þótt vissulega megi með einhverjum hnitmiðaðri hætti reyna að koma í veg fyrir að vegvilltir og viti firrtir fjallafarar ani upp á fjöll og firnindi og fari sér þar að voða sökum óaðgætni um veðurhorfur og neyði þar með fórnfúsa björgunarsveitarmenn til að færa þeim fórnir að óþörfu.
Búist við hviðum strax í kvöld | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Samgöngur | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.