Eiga mannskæðar farsóttir greiða leið til Íslands?

Í viðtengdri frétt á mbl.is um hælisleitanda, sýktan af alvarlegum sjúkdómi, er haft eftir sóttvarnalækni Íslands:
"„Það eru ekki nein­ar ná­kvæm­ar dag­setn­ing­ar á því hvenær menn eiga að vera komn­ir í skoðun og þess hátt­ar,“ seg­ir Har­ald­ur enda hafa heil­brigðis­yf­ir­völd ekki tök á því að taka fólk í lækn­is­skoðun þegar í stað."

Léleg eru nú rök sóttvarnarlæknis Íslands, þótt hann beri ekki formlega pólitíska ábyrgð á regluverkinu. Öllu alvarlegri eru þó þessi tíðindi hans vegna þess að þau afhjúpa greiða leið mannskæðra farsjúkdóma til Íslands.
Hér er augljóslega alvarleg brotalöm á regluverki og/eða vinnugangi viðkomandi opinberra aðila. Við þessu verður að bregðast tafarlaust og ekki gengur að allir vísi á einhvern annan, hvorki heilbrigðisyfirvöld né innflytjendamálayfirvöld.

Eða, eiga einstaklingar sem e.t.v. eru sýktir af alvarlegum farsóttarsjúkdómi að hafa möguleika á því að umgangast landsmenn að eigin vild, og það í langan tíma eins og í umræddu tilviki, án sóttvarnaraðgerða og einangrunar og í versta falli að verða til þess að leggja marga landsmenn að velli? - Eins og gerðist á miðöldum þegar Svarti dauði barst til landsins og á síðustu öld þegar spænska veikin barst til landsins.
Þessi innflytjendamál eru greinilega í alvarlegum ólestri sem er gjörsamlega óviðunandi.


mbl.is Hafði ekki skilað læknisvottorði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Það þarf ekki að leita langt eftir smitleiðum:

Er enginn á alþingi eða í stjórnkerfinu til að spyrna við fótum?

http://www.mbl.is/frettir/taekni/2014/07/11/hiv_smitum_fjolgar_medal_samkynhneigdra/

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2014/08/05/fallegt_ad_hommar_vilji_gefa_blod/

Jón Þórhallsson, 27.7.2015 kl. 16:48

2 Smámynd: Jón Þórhallsson

Og biskup íslands og  guðfræðingarnir í hÁSKÓLA Íslands

tralla bara með kynvillu-fólkinu og stuðla að aukinni útbreiðslu smitpesta með stuðningi sínum við gay-pride-menninguna þvert  gegn HEILAGRI RITNINGU BIBLÍUNNI 3.Mos 2.13?

http://www.dv.is/folk/2012/8/5/hlynnt-hjonabondum-samkynhneigdra/

http://einhjuskaparlog.tumblr.com/

Jón Þórhallsson, 31.7.2015 kl. 11:58

3 Smámynd: Jón Þórhallsson

Þarna átti að standa: *3.Mos.20.13*

http://thjodarskutan.blog.is/blog/thjodarskutan/entry/1356315/

Jón Þórhallsson, 31.7.2015 kl. 12:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband