María óbrotin undan austur-evrópskum drunga

María er frábær söngkona og tónlistarflytjandi sem á framtíðina fyrir sér. Svo sannarlega.

María stóð sig fjarska vel við flutninginn ástamt þéttum bakröddunum og í ljósi magnaðs sjónarspils að baki. Það stendur upp úr.

Ólíku er saman að jafna og erfitt er að vera í riðli með keppendum sem flestir tilheyrðu hinni austur-evrópsku ný-tónlistarhefð og smekk þarlendra kjósenda. Þeim er enn mikið niðri fyrir eftir dökka áratugi undir hömlum ömurlegs stjórnarfars og flytja og taka kröftuglega undir tónlistarflutning í þeim bitra anda í uppgjöri sínu við hann á þessum vettvangi.

Fróðlegt verður að sjá hvernig atkvæði úreltrar dómnefndar féllu samanborið við símaatkvæði einstaklinga og hvort þar megi rekja einhver súr Evrópusambandsspor gagnvart Íslendingum.


mbl.is „Ég söng af mér rassgatið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar

Heil þjóð þjökuð af meðvirkni og paranoju í bland.

1. Lagið var ömurlegt

2. María réð ekki við lagið, bæði stressuð og fölsk á köflum, réði engan veginn við háu tónana.  Henni til bjargar má þó segja það að það hefði sennilega enginn flytjandi í veröldinni náð að koma þessu hörmulega lagi áfram í keppninni.

Óskar, 22.5.2015 kl. 14:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband